154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og verð að segja að ég held að það sé alls ekki hægt að segja að það sé verið að taka lítil skref hér. Það er það alls ekki með afnámi 2. mgr. 36. gr. laganna þar sem er svo sannarlega um séríslenska reglu að ræða. Það er nú eitthvað sem ég veit að ráðherrar úr mínum flokki hafa ítrekað lagt til og það hefur verið mikil umræða um þetta á síðustu árum. En núna horfum við fram á að það er hér komið fram og við erum að leggja það til og það er auðvitað risastórt skref. Við gerðum líka verulegar breytingar á útlendingalöggjöfinni okkar bara síðasta vor og sást það m.a. hér í þessum þingsal hvað mörgum þingmönnum var brugðið. Hér var rætt um það mál inn í margar nætur og ég veit ekki hversu margar klukkustundir fóru í það. Ég held að þau skref sem við erum að stíga í þessum málaflokki séu stór og þau séu veigamikil og þau skipti líka miklu máli.

Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að það er mikilvægt að við lærum af vinum okkar, hvort sem það eru vinir okkar í Danmörku, Noregi, Svíþjóð eða Finnlandi, nú eða annars staðar í Evrópu. Það er full ástæða til að horfa á hvað þar er verið að gera, bæði hvað er verið að gera vel en ekki síður líka hvað hefur farið úrskeiðis. Þar getum við lært bæði af þessum ramma sem við erum svo sem að fjalla um hér, sem er lagalegi ramminn í kringum umsóknir um alþjóðlega vernd, en ekki síður líka varðandi inngildingu og móttöku flóttamanna og hvernig við gefum þeim tækifæri til að vera fullir aðilar að okkar góða samfélagi.

Þannig að ég vildi bara sagt hafa varðandi þessar breytingar sem hér liggja fyrir frá hv. þingmanni, atriði sem voru, eins og ég sagði áðan, í frumvarpi ráðherrans í samráðsgáttinni en voru tekin út, þ.e. talsmannaþjónustan, að ég held að við þurfum að fylgjast vel með þessum þætti málsins og horfa til þess hvað hann þýðir. Það er auðvitað þannig að þegar um endurteknar umsóknir er að ræða þá á fólk ekki rétt á talsmannaþjónustu, eðlilega. Það hefur verið aðeins breyting á því hvað hin Norðurlöndin hafa verið að gera. (Forseti hringir.) Einhver hafa fellt þetta út og tekið inn aftur þannig að á endanum kunni það mögulega að vera ákveðinn sparnaður í kerfinu að fólk geti farið greiðlega í gegnum það. (Forseti hringir.) En ég tek undir að það þarf að hafa augun á þessum bolta og hér eru mikilvæg atriði og við þurfum að fylgjast með framvindu þeirra á næstu misserum.