154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:28]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta allsh.- og menntmn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held með stærð skrefanna og fjölda þeirra þá megi kannski segja að það blasi augljóslega við okkur þingmönnum að það sé ekki verið að stíga þau skref sem a.m.k. dómsmálaráðherra telur nauðsynlegt að stíga, bara í ljósi þess að nú þegar er búið að flagga frekari framlagningu mála næsta haust. Skilaboðin sem fylgja þessu máli eru: Jú, jú, það er eitt og annað hér sem er til bóta en við vitum nú þegar um hluti sem við verðum að klára sömuleiðis. Það er í rauninni það sem ég er að gagnrýna, að menn reyni ekki að stíga þessi skref hraðar og ná hraðar með tærnar þar sem frændur okkar hafa hælana í þessum efnum. En mér finnst skipta máli varðandi þessi atriði sem við leggjum til að verði bætt inn, þessi tvö atriði sem féllu út milli samráðsgáttar og framlagningar hér í þinginu, að þingmenn fái í öllu falli tækifæri til að leggja mat á þetta og taka afstöðu til þess hvort þeim hugnist að hafa þessar breytingar inni, þessi efnisatriði eins og þau birtust í samráðsgáttinni forðum. Í þeirri atkvæðagreiðslu teiknast þá aðeins upp, má segja, mynd sem liggur þá fyrir gagnvart framlagningu nýs máls hæstv. dómsmálaráðherra næsta haust.