útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir ræðuna og ekki síst fyrir að vera bara mjög skýr í máli sínu. Ég held að það sé mikilvægt að í svona viðkvæmum og mikilvægum málaflokki og við ræðum hér sé afstaða stjórnmálaflokka skýr. Ég greini mikinn mun á afstöðu Samfylkingarinnar nú og áður þegar þessi málaflokkur hefur verið ræddur og ég ætla að leyfa mér að hrósa hv. þingmanni, formanni Samfylkingarinnar, fyrir þessa skýru afstöðu og grunar reyndar að það kunni m.a. að vera ein af ástæðunum fyrir því af hverju Samfylkingunni virðist ganga vel í skoðanakönnunum.
Margt af því sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni endurspeglar algerlega viðhorf mín og viðhorf míns flokks. Það er mikilvægt hvernig við tölum um þennan málaflokk af mannúð en við viðurkennum jafnframt hvað skilvirkni skiptir miklu máli. Ég er alveg sammála því að stefnan í þessum málaflokki þarf að litast öll af mannúð en líka af raunsæi og auðvitað væri best ef þetta væri ekki pólitískt bitbein. Það myndi örugglega vinna gegn skautun, ég get tekið undir það.
Hv. þingmaður fór hér yfir nefndarálitið sem liggur fyrir frá fulltrúa Samfylkingarinnar í allsherjar- og menntamálanefnd og það er líka að mörgu leyti skýrt. Ef ég skil þetta rétt þá virðist Samfylkingin ætla að styðja stóran hluta af því sem hér liggur fyrir. En ég er samt enn þá hugsi yfir breytingartillögu er varðar 2. mgr. 36. gr. vegna þess að þar er augljóslega ekki verið að tala um verndarmál, þannig að við virðumst vera sammála um það að þeir sem eru með alþjóðlega vernd annars staðar eigi ekki rétt á málsmeðferð á Íslandi. (Forseti hringir.) En þegar verið er að ræða sérstöku tengslin og þá aðila sem ekki eru með vernd þá held ég að það ákvæði (Forseti hringir.) falli algerlega undir Dyflinnarreglugerðina. Og þó að Norðmenn (Forseti hringir.) séu með einhverja sérstaka grein skrifaða inn í þá held ég að þetta eigi bara við hér líka og (Forseti hringir.) tel í rauninni ekki ástæðu til að hafa sérstaklega reglur þar að lútandi.
(Forseti (OH): Forseti minnir hv. þingmenn á að gæta að ræðutíma.)