154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:50]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. En svo ég komi mér bara beint að spurningunni: Það er ástæða fyrir því að Norðmenn hafa skrifað þetta með þessum hætti inn í sinn lagabálk. Fólk vill meina að með því að taka þetta sérstaklega fram í lögunum séu meiri líkur á að stjórnvöld líti til þessa ákvæðis við málsmeðferð. Þannig að við erum auðvitað bara að líta til frænda okkar á Norðurlöndum og sérstaklega í þessu tilviki Norðmanna og teljum að þessi framkvæmd og framsetning sé mikilvæg. Það er einfalda skýringin á því af hverju við leggjum til að þetta sé sett fram á þessu formi. Við viljum einfaldlega að þessu sé fylgt eftir með þeim hætti sem það er skrifað út þá í séríslensk lög.