útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum fyrst og fremst að gera athugasemd við það að þessi breytingartillaga kemur inn á síðustu metrunum. Ég held satt best að segja að ef þetta hefði verið unnið með öðrum hætti, þetta hefði komið fyrr fram og það hefði verið efnisríkari umræða, að mér skilst, um þessa breytingu og útfærslu á henni í nefndinni þá hefði verið hægt að taka undir ákveðin sjónarmið um að vera með hvata er snerta tungumálakunnáttu. Ég held hins vegar, hv. þingmaður, að við verðum að vera raunsæ hvað það varðar, að það að gera mjög mikla kröfu um tungumálakunnáttu á svona skömmum tíma, eins og einu ári, er e.t.v. ekki raunsætt. Það þýðir ekki að Samfylkingin sé á móti þeirri inngildingu sem felst vissulega í því að gera fólki kleift að sækja námskeið í íslensku til að mynda, og það á alltaf að vera aðaláherslan í inngildingu í íslensku samfélagi, en að tengja það á þessu stigi málsins óútfært, óskýrt og með svona litlum aðdraganda og innan árs er eitthvað sem við töldum óheppilegt en við myndum styðja ákveðin skilyrði um framfærslu.