útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni Samfylkingarinnar fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð. Það sem mig langar að spyrja um er 2. mgr. 36. gr., þegar einstaklingur sem er kominn með alþjóðlega vernd kemur aftur að sækja um alþjóðlega vernd. Það er alveg kristaltært í mínum huga að ekkert annað ríki hefur þetta. Af hverju á að afnema þessa reglu? Ég er margbúinn að spyrja um þetta. Það er vegna þess að einstaklingur með alþjóðlega vernd á Schengen-svæðinu t.d. getur komið hingað og sótt um dvalarleyfi. Hann þarf ekki að sækja aftur um alþjóðlega vernd. Hann kemur einfaldlega og sækir um dvalarleyfi og fer þá leið til Íslands. Þá getur hann sýnt fram á sérstök tengsl, með vinnu eða hvað sem er, og fengið dvalarleyfi. Hann þarf ekki að fá aftur alþjóðlega vernd. Ég skora á hv. þingmann að skoða norsku lögin, 28. gr. „utlendingsloven“ — og mér skilst að þetta sé fyrirmyndin — og 32. gr. þar sem kemur fram nákvæmlega að hægt er að neita einstaklingi sem sækir um „oppholdstillatelse“, sem sagt dvalarleyfi skv. 28. gr. þeirra laga, ef hann hefur fengið „asyl“, alþjóðlega vernd í öðru landi eins og segir í a-lið, svo kemur b, c og d. Málið er að norsku lögin eru ekki rétt túlkuð í nefndarálitinu, ekki 32. gr. Ég skora á hv. formann að endurskoða þetta fyrir 3. umræðu og skoða ákvæði norsku laganna hvað það varðar. Það er alveg kristaltært að 2. mgr. 36. gr. í íslenskum lögum á að fara burtu vegna þess að það er hægt að sækja um dvalarleyfi og er þessi furðulega íslenska sérregla sem enginn skilur. Líka það að það þarf enginn tvær regnhlífar, þú ert kominn með vernd, þú ert kominn með skjól og þá geturðu flutt þig milli landa á grundvelli dvalarleyfis.
Það sem mig langar líka að spyrja um er varðandi fjölskyldusameiningar, að þessar breytingar séu til þess fallnar að valda ótta. (Forseti hringir.) Hvaða fyrirmynd hefur Samfylkingin varðandi tilvísun til fjölskyldusameiningar? Hv. þingmaður hefur talað um að það eigi að vera raunsætt kerfi í anda Norðurlandanna. Hvar fáið þið þennan anda Norðurlandanna yfir ykkur með tillögu ykkar um fjölskyldusameiningu?