154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:57]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvort ég hafi misskilið hv. þingmann eða hann hafi misskilið mig en það er svo að þetta ákvæði sem við erum að vitna til og eins og það er útfært í okkar breytingartillögu, sama hvernig hann kann að túlka það í norsku löggjöfinni, en eins og það er útfært í okkar breytingartillögu og er andi norsku löggjafarinnar snýr að því fyrst og fremst að fólk sem er nú þegar búið að sækja um vernd en er ekki búið að fá vernd og er með sérstök tengsl við landið geti fengið þessa efnismeðferð. Þetta snýr ekki að verndarmálum, þ.e. fólki sem er þegar komið með alþjóðlega vernd í öðru ríki. Þetta myndi líka fela í sér brottfall þessa 12 mánaða frests. Ég tek undir það sem hv. þingmaður var að segja, að við eigum að virða það kerfi sem hér er og við höfum gerst aðilar að alþjóðlegu verndarkerfi þar sem við treystum móttökuríki til að sjá um umsóknina en vissulega eru ákveðin jaðartilvik þar sem er hægt að taka til skoðunar önnur mál. Þarna eigum við sérstaklega við þessi Dyflinnarmál þar sem eru sérstök tengsl, ekki verndarmálin.

Varðandi fjölskyldusameiningarnar þá fór ég ágætlega yfir þær kríteríur sem við töldum að þyrfti að eiga þar við, nefndi sérstaklega að það væru aðeins fimm af 36 Evrópulöndum sem væru með slíkan biðtíma. En ég vil líka árétta að þegar við erum að leggja til og ræða um trygga framfærslu þá liggur það auðvitað í hlutarins eðli að það mun taka einhvern tíma til þess að meta slíka framfærslu. Við áttum okkur alveg á því að það er þarna samhengi á milli tíma og framfærslu. En þetta er að okkar mati bara illa útfært ákvæði, ekki til þess fallið að stuðla að inngildingu eða skilvirkni og þess vegna erum við með þessa breytingartillögu.