útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég tel gríðarlega mikilvægt að við séum í samræmi við hin Norðurlöndin hvað varðar þessa löggjöf og hún sé í anda Norðurlandanna og við horfum til Danmerkur og Noregs sérstaklega. Ég skora á hv. þingmann að horfa til Norðurlandanna með góðum gleraugum. 2. mgr. 36 er klárlega algerlega íslensk uppfinning.
Varðandi fjölskyldusameininguna þá vil ég spyrja hvað hv. þingmanni finnst um það að einstaklingur sem fær dvalarleyfi hérna geti strax farið í fjölskyldusameiningu, það sé ekki gerð krafa um að hann geti séð fjölskyldu sinni farborða með því að stunda vinnu og hann sé kannski ekki búinn að koma sér upp viðeigandi húsnæði og hafi ekki einu sinni grunnþekkingu í tungumálinu, sem ég er algerlega sammála að þú lærir ekki á tveimur árum tungumál að því marki sem skiptir máli. Er ekki rétt að gera þessar kröfur? Við erum sammála greinilega varðandi framfærsluna miðað við breytingartillöguna, en er ekki rétt að það sé einhvers konar krafa líka um húsnæði og líka tungumálakunnáttu? Ég veit að þú getur ekki hoppað inn á íslenskan vinnumarkað strax og þú kemur hingað en þetta tekur tíma. (Forseti hringir.) Það tekur tíma að koma sér fyrir, tvö ár a.m.k. að mínu viti. Ég veit að þetta er erfitt fyrir flóttafólk, það er vanlíðan, það er erfitt að koma til nýs lands, (Forseti hringir.) en mér finnst þetta vera einum of opið, sérstaklega út frá Norðurlöndunum, með þessa fjölskyldusameiningu, svo ég segi það bara hreint út: (Forseti hringir.) Við eigum að horfa á samræmið. Það er samábyrgðin sem skiptir máli í þessum málaflokki, þetta eru alþjóðlegar skuldbindingar. (Forseti hringir.) Hvar finnst hv. þingmanni samábyrgðin liggja ef við erum með rýmri reglur?