útlendingar.
Forseti. Ég ætla bara að fá að vitna aftur til þess sem ég sagði í ræðu minni áðan. Við bentum á að skilyrði um trygga framfærslu og íbúðarhúsnæði mætti vel teljast málefnalegt og svo liggur það auðvitað í hlutarins eðli að inn í framfærslu hlýtur að vera krafa um að slík framfærsla tryggi að fólk geti búið á öruggum stað þannig að ég get alveg tekið undir þau sjónarmið sem eru eðlileg. Varðandi íslenskukunnáttu þá held ég að þar þurfum við bara að vera raunsæ. Eins og ég sagði áðan í svari mínu við spurningu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur þá verður það auðvitað eilífðarverkefni fyrir okkur að tryggja inngildingu í formi tungumáls. En þetta er bara ákveðin jafnvægislist, hvernig við tryggjum ákveðna inngildingu fyrir þann hóp sem hér hlýtur vernd. Við vitum það vel að fólk sem er með fjölskyldu sína er öruggara, er líklegra til að upplifa sig sem hluti af samfélaginu og þetta er bara það jafnvægi og sá tónn sem við erum tilbúin að slá í Samfylkingunni.