útlendingar.
Forseti. Líkt og ég gerði hér áðan í andsvörum mínum við ræðu hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur langar mig að byrja á að lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að þingmenn Samfylkingarinnar skuli lepja gagnrýnislaust upp fullyrðingar Sjálfstæðisflokksins sem standast ekki skoðun, t.d. varðandi það að einhver sérregla í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé einhvers konar segull. En ég ætla bara að vísa til samtals míns og hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur hvað það varðar.
Hv. þingmaður talar um skautun í umræðunni og að það sé eitthvað sem við þurfum að forðast og ég er sammála henni um það. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvað hún telur að valdi skautuninni og með hvaða hætti við vinnum gegn henni.
Svo langar mig að spyrja hv. þingmann hvað henni finnst um athugasemdir þær sem Lögmannafélag Íslands gerði við breytingar á skipan kærunefndarinnar, þar á meðal það sem m.a. kemur fram í umsögn Lögmannafélags Íslands, sem verður nú seint talið sérstaklega róttækt félag, um að þetta sé mjög óvenjuleg skipan úrskurðarnefndar, annars vegar að fela svona fáum nefndarmönnum að úrskurða í málum. Þetta er fáheyrt. Ég þekki ekki önnur dæmi um þetta í stjórnsýslunni. Úrskurðarnefndir eru almennt fjölskipaðar til að tryggja réttaröryggi fólks og tryggja að það fái endurskoðun mögulega rangrar stjórnvaldsákvörðunar lægra stjórnvalds. Persónulega tel ég það sérstaklega alvarlegt í þessum málaflokki þar sem þessi hópur fólks hefur sérstaklega lítið aðgengi að dómstólum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað henni finnst um þessa umsögn Lögmannafélags Íslands.