154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:04]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvað veldur skautun í umræðunni, sérstaklega í þessum málaflokki? Ég held að það sé ekkert eitt, hv. þingmaður. Ég held að það sem mögulega valdi skautun sé að það er hópur af fólki sem treystir sér ekki til að taka þátt í umræðunni, stundum vegna þess að það er sakað um vanþekkingu ef það spyr spurninga sem getur gert það að verkum að það er kannski bara pólun í sumum tilvikum, alveg eins og við sjáum í fjölmiðlum í svo mörgum málaflokkum þar sem er oft tekist á. Með því er ég ekki að segja að þau atriði sem koma fram í póluninni, ef svo má segja, geti ekki oft verið mikilvæg. En ég held að það skipti alveg gríðarlega miklu máli að við gefum okkur hér inni í þessum sal að meginþorri íslensks almennings vilji taka vel á móti fólki, vilji taka fólki sem er að flýja ofsóknir og ógn og hættulegt ástand opnum örmum en vilji að það sé sanngirni líka í því hvernig kerfið virkar og að það sé notað með þeim hætti sem það er skilgreint. Ég held að við eigum að gefa okkur þegar fólk er að spyrja spurninga að þótt það kunni að orða þær með einhverjum hætti sem fólk kann ekki að meta eða er ekki réttur út frá ákveðnum lögfræðilegum skilningi, að við sýnum því skilning. Ég held að það geti hjálpað. Ég held að það hjálpi líka að við treystum okkur til að vinna saman að ákveðnum úrræðum hér inni.

Varðandi spurninguna um skipan úrskurðarnefndanna er það minn skilningur að það sé komið vel til móts við kröfuna um mannréttindaþekkingu í þeirri breytingu sem varð á málinu í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég vek líka athygli á því, eins og hv. þingmaður veit eflaust mjög vel, að það er talsvert mikil vinna ef ekki stór hluti vinnunnar sem er unninn upp í hendurnar á nefndarmönnum í þessum tilvikum. Það er ekki hægt að gefa sér það að þeir aðilar sem eru skipaðir í þessa nefnd hafi ekki (Forseti hringir.) nægilega mannréttindaþekkingu vegna þess að það er auðvitað bara skýrt og klárt hæfismat að baki þessum skipunum.