útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var hins vegar annar þáttur í gagnrýni Lögmannafélagsins sem ég var fyrst og fremst að vísa til. Ég ætla bara að fá að lesa hérna upp, með leyfi forseta:
„Eingöngu skuli kalla til þriðja nefndarmanninn ef nefndarmenn séu ekki sammála um niðurstöðu máls.“ — það skulu sem sagt að jafnaði tveir nefndarmenn úrskurða í máli — „Verður það að teljast fremur óvanalegt fyrirkomulag enda opinberar nefndir almennt skipaðar í það minnsta þremur aðilum sem taka ákvörðun í málum. Laganefnd telur þetta fyrirkomulag óheppilegt og til þess fallið að draga úr réttarvernd. Þá þykja nefndinni heimildir nefndarmanna til þess að úrskurða einir í málum mjög víðtækar samkvæmt frumvarpinu og tilefni til að endurskoða í hvaða tilfellum eðlilegt er að slíkt sé heimilt.“
Í umsögn Lögmannafélagsins kemur fram að laganefnd Lögmannafélagsins eigi erfitt með að sjá hvernig breytingarnar sem þarna eru lagðar til eigi að auka skilvirkni, enda kemur fram í frumvarpinu að þetta breytta fyrirkomulag muni hvorki auka kostnað né minnka hann. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvers vegna Samfylkingin sé að fallast á þetta; skerta réttarvernd fólks á flótta sem þegar býr við gríðarlega slæmt aðgengi að endurskoðun (Forseti hringir.) ákvarðana íslenskra stjórnvalda, þegar ekkert bendir til þess (Forseti hringir.) að það leiði til skilvirkni eða hagræðingar og að sjálfsögðu allra síst mannúðar.