útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið í þessa umræðu. Hv. þingmaður talar, líkt og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hérna áðan, um að þetta sé gríðarlega mikilvægt mál og það styrki stoðir kerfisins og annað slíkt og svo talar hv. þingmaður um að verndarkerfið sé fyrir þá sem raunverulega þurfa á vernd að halda. Þetta þykir mér alltaf dálítið ruglingsleg orðræða í umræðum um bæði þetta mál og síðan annað mál sem við ræddum hérna á síðasta þingi þar sem það virðist byggja á því að hér sé mikið af fólki að sækja um vernd sem þarf ekki raunverulega á henni að halda. Það er forsendan sem birtist í þessum orðum og að við þurfum einhvern veginn að fækka þeim umsóknum fólks sem þarf ekki raunverulega á vernd að halda. Mig grunar að hv. þingmaður sé hér að vísa til einstaklinga sem þegar hefur verið veitt vernd í öðrum ríkjum. Þá vil ég benda hv. þingmanni á það að þeir einstaklingar sem koma hingað til lands eftir að hafa fengið vernd í öðrum ríkjum hafa nánast undantekningarlaust fengið vernd í Grikklandi. Í Grikklandi er flóttafólk á götunni og það eru ekki bara á götunni, malbikaðri götunni, það býr á ruslahaugum, brotajárnshaugum, undir brú, úti, kona með börn er úti, hún er ein úti undir brú einhvers staðar, á einhverjum brotajárnshaug í einhverju Nova-tjaldi sem hún fann einhvers staðar með börnin sín. Hvað ætlar hún að gera ef einhver kemur og tekur af henni börnin? Hvað ætlar hún að gera?
Það sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um er: Telur hv. þingmaður einstakling sem þarf að reiða sig á hjólastól og hefur fengið vernd í Grikklandi ekki raunverulega þurfa á vernd að halda þegar hann kemur hingað? Eða þegar um er að ræða fylgdarlaus (Forseti hringir.) börn á grunnskólaaldri? Þau eru fylgdarlaus, þau eru ein og koma hingað til lands, (Forseti hringir.) sannarlega í fylgd einhvers þegar þau koma en kannski er viðkomandi (Forseti hringir.) ekki tengdur þeim. Telur hv. þingmaður þessa einstaklinga ekki vera í raunverulegri þörf fyrir vernd?