154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:20]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er spurning um það hvernig við metum raunverulega vernd, raunverulega þörf fyrir vernd hér á landi. Það eru 200–300 umsóknir sem koma hingað til okkar frá fólki sem er nú þegar með vernd í öðru landi. Það er ekki allt frá Grikklandi, það er líka Svíþjóð, Danmörk, Noregur og annað. (ArnG: Mjög fá.—) — Bíddu, ég er að tala, hv. þingmaður, ég hef orðið. Það skiptir rosalega miklu máli að við séum að tala út frá staðreyndum, röksemdum og kannski hugsanlega geymum aðeins tilfinningarnar þegar kemur að því að við erum að taka utan um þennan málaflokk í þessu máli. Það skiptir líka máli í umræðunni að við erum ekki að breyta fjölskyldusameiningum þegar kemur að fylgdarlausum börnum.