154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:21]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég er ekki að tala um neinar tilfinningar hérna heldur einfaldlega staðreyndir og hef orðað mínar spurningar út frá því. Ég ætla í þessari ræðu minni að fara örlítið yfir þau markmið sem upphaflega var sagt að væru með þessum breytingum. Að sjálfsögðu hefur komið á daginn við vinnslu málsins að markmiðin sem koma fram í greinargerðinni eru ekki hin raunverulegu markmið með þessum breytingum en í greinargerð og framan af umræðunni var fyrst og fremst talað um að markmiðin með þeim breytingum sem hér er verið að leggja til væru að bæta skilvirkni, tryggja hagræðingu og auðvitað er því haldið fram að allt þetta sé í samræmi við mannúð, lágmarkskröfur og annað. Það er hins vegar orðið, held ég, nokkuð skýrt og er sannarlega súrsætt að verða vitni að því að flutningsmenn frumvarpsins viðurkenni það að þetta snúist fyrst og fremst um það að hvetja fólk til að leita eitthvert annað en til Íslands.

Ég ætla að fara yfir frumvarpið grein fyrir grein og lýsa því hvers vegna ég hef áhyggjur af því að þetta sé skaðlegt fyrir okkar kerfi og okkar samfélag í ofanálag við að vera skaðlegt fyrir þá einstaklinga sem um ræðir. Ég ætla, með vísan til orða hv. þm. Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur hér áðan, að leggja tilfinningarnar til hliðar, enda hafði samtal okkar hérna áðan ekkert með tilfinningar að gera, alla vega ekki af minni hálfu. En þó að þingmönnum sé tíðrætt reyndar um það í þessari umræðu, fleirum en hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, að tilfinningar eigi ekki að skipta máli þá er ég reyndar svolítið ósammála því. Ég held að ef við værum aðeins meðvitaðri um mennskuna í okkur sjálfum þá myndum við oft breyta öðruvísi. En við getum tekið mennskuna, mannúðina, og lagt hana algerlega til hliðar í þessu máli og það er samt slæmt. Þetta er samt vont mál.

Fyrsta breytingin sem lögð er til í frumvarpinu snýst um fækkun nefndarmanna í kærunefnd útlendingamála, úr sjö í þrjá. Þessir þrír nefndarmenn verða í fullu starfi. Þetta er m.a. af hálfu Lögmannafélags Íslands ekki talin góð breyting, hún muni ekki stuðla að skilvirkni og það er ekkert sem bendir til þess að hún muni hafa sparnað í för með sér enda er því í sjálfu sér ekki haldið fram, það kemur fram að þessi breyting muni hvorki auka kostnað né minnka. Tilgangur breytingarinnar er, að því er ég held, upphaflega sá að þrengja þau sjónarmið sem eru í nefndinni og styð ég það einnig með vísan til annarrar breytingar, sem reyndar hefur verið dregin til baka af hálfu meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar að ákveðnu leyti, sem er að taka sérþekkingu á mannréttindum út úr nefndinni. Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir því að Mannréttindaskrifstofa Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands tilnefni einn nefndarmann hvor. Frá því er fallið með þessum breytingum sem hér eru lagðar til af engum augljósum ástæðum. Það er gert ráð fyrir því með þessum breytingum í frumvarpinu að nefndarmenn í kærunefnd útlendingamála verði einungis þrír og þeir séu allir skipaðir eftir geðþótta dómsmálaráðherra með öllum venjulegum fyrirvörum þar sem slík skipan þarf að sjálfsögðu að vera í samræmi við lög og ég geri ráð fyrir að það hafi svo sem alltaf verið ætlunin.

Þetta tel ég vera tilganginn. Ég ætla bara að vera heiðarleg og hreinskilin hérna. Ég tel að það hafi þótt til trafala að í nefndinni hafi verið ólík sjónarmið og séu. Ég tel þetta mjög slæma breytingu, ekki síst vegna þess að einstaklingar sem sækja um vernd, umsækjendur um alþjóðlega vernd, hafa gríðarlega takmarkað aðgengi að dómstólum. Allar breytingar sem gerðar eru til skerðinga á möguleikum fólks á flótta til þess að fá ákvörðun á fyrsta stjórnsýslustigi endurskoðaða eru mjög varhugaverðar vegna þess að það er yfir höfuð í gríðarlega vondri stöðu til þess að verja sig og leita réttar síns vegna þess að það er að jafnaði farið úr landi áður en tækifæri gefst til þess, fyrir utan það að oft er um einstaklinga að ræða sem hafa þurft að skilja allt sitt eftir og hafa sannarlega ekki á þeim tímapunkti fjárráð til þess að sækja rétt sinn.

Verstu breytingarnar á kærunefndinni og þessu ferli voru hins vegar gerðar á síðasta ári sem gerðu í rauninni fólki sem sækir um vernd gríðarlega erfitt fyrir að fá ranga ákvörðun leiðrétta. Þessari breytingu sem hér er lögð til tel ég því miður ætlað að ganga lengra í þá átt. Ég tek undir með Lögmannafélaginu, ég tel að hún muni ekki vinna í átt að skilvirkni og að þetta sé hvorki nauðsynleg breyting né góð. Hins vegar er til bóta sú breytingartillaga sem kemur frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar þar sem gerð er krafa um sérþekkingu á mannréttindum og stjórnsýslurétti. Ég hef lengi haldið því fram að það væri hægt að auka skilvirkni hjá Útlendingastofnun mjög mikið með því að auka þekkingu starfsfólks stofnunarinnar á stjórnsýslurétti. Þetta hef ég sagt í u.þ.b. 13 ár, en nóg um það.

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um ákvæði 2. gr. sem lýtur að því að leyfa einum eða tveimur nefndarmönnum að úrskurða í máli og gríðarlega mikið víðtækt svið sem einn nefndarmaður getur úrskurðað í. Ég vil bara vísa til umsagnar Lögmannafélags Íslands hvað þetta varðar og vek athygli á því að Lögmannafélag Íslands er engin mannúðarsamtök og talar sannarlega ekki út frá neinum tilfinningum heldur út frá okkar réttarkerfi, stjórnsýslurétti eins og við höfum byggt hann upp í samræmi við okkar gildi og stjórnskipan. Ég hvet hv. þingmenn til að skoða umsögn Lögmannafélags Íslands.

Eitt alvarlegasta ákvæðið í þessu frumvarpi er m.a. 4. gr. og sú breyting í 5. gr. að 2. mgr. 36. gr. verði felld brott. 2. mgr. 36. gr. kom inn með núgildandi lögum árið 2016. Þetta er ákvæði sem kveður á um það að ef sérstakar ástæður mæla með því þá skuli umsókn einstaklings tekin til efnismeðferðar hér á landi, jafnvel þrátt fyrir að viðkomandi hafi t.d. fengið vernd í öðru ríki. Í framkvæmd hér á landi og reyndar víðar í Evrópu er oftast um að ræða einstaklinga sem hafa fengið vernd í Grikklandi þar sem kerfið er fyrir langa löngu, fyrir áratugum, að þrotum komið og fólk er á götunni; börn, konur, fatlað fólk, veikt fólk, allt fólk meira og minna. Það er kannski ekki skrýtið að það leiti lengra. Það er lagt til að þetta ákvæði sé fellt brott en það var sett í þverpólitísku samráði árið 2016. Nú vil ég kannski rifja upp fyrir einhverjum sem eru búnir að gleyma því og fræða aðra sem voru kannski ekki mikið að fylgjast með þessum málaflokki á þeim tíma að þetta ákvæði var sett í kjölfar þess að hingað leituðu fjölskyldur, barnafjölskyldur. Ein barnafjölskylda var sérstaklega eftirminnileg, kornung hjón frá Sýrlandi með tvær stelpur á leikskólaaldri. Þau komu í fjölmiðla og færðu þjóðinni sögu sína, m.a. á sviði Borgarleikhússins þar sem móðirin, mjög ung, brotnaði niður við tilhugsunina um það að fara aftur til Grikklands með börnin sín, óvarin fyrir ofbeldi, misnotkun og neyð.

Þágildandi lög, nr. 96/2002, höfðu ekki heimildina sem er í 2. mgr. 36. gr. í dag. Þetta mál m.a. var ástæðan fyrir því að þetta ákvæði var sett í þverpólitískri sátt á sínum tíma. Á þeim tíma var fólk líka að leita til Íslands sem hafði fengið vernd annars staðar þó að það væri ekkert svona séríslenskt ákvæði vegna þess að fólk leitar að vernd þangað til það finnur hana. Fólk í lífshættu leitar skjóls þar til það finnur það og fólk leitar til allra ríkja Evrópu þrátt fyrir hafa fengið vernd í Grikklandi og fólk sem er vísað héðan beint aftur til Grikklands sættir sig ekki við það og heldur áfram að búa í Grikklandi. Ég veit svo sem ekki hvað verður um alla þessa einstaklinga, það er ekkert fylgst með því og það er enginn að pæla í því, en það er mjög algengt, nú hef ég sjálf haft marga skjólstæðinga sem hafa beðið þau örlög að fara eitthvert annað, að þau halda áfram og leita og fá vernd í öðrum Evrópuríkjum. Þetta ótrúlega séríslenska ákvæði er ekki séríslenskara en svo að þessir einstaklingar eiga möguleika í öðrum ríkjum. Hins vegar eru önnur ríki að beita t.d. grundvallarreglu þjóðaréttar um að ekki megi vísa fólki þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu í svona málum. Ísland hefur aldrei gert það, aldrei, við höfum aldrei gert það. Ég spyr hv. þingmenn sem styðja þetta mál hvers vegna þau halda og vísa í það, m.a. vísar meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar í það, að þá verði bara beitt 3. mgr. 36. gr. Henni hefur aldrei verið beitt. Það er ekki vegna þess að 2. mgr. 36. gr. er fyrir hendi vegna þess að sambærilegu ákvæði í eldri lögum var heldur aldrei beitt, aldrei. Samt var þetta fólk að leita hingað og þá var engin 2. mgr. Hún var sett akkúrat vegna þess að okkar framkvæmd var öðruvísi en í öðrum Evrópuríkjum.

Það má segja að með því að setja inn 2. mgr. 36. gr. höfum við að ákveðnu leyti verið að reyna að laga okkar löggjöf að því sem gengur og gerist í Evrópu. Löggjöf er mjög ólík á milli ríkja í Evrópu, mjög ólík á milli Norðurlandanna líka, og auðvitað orðin algerlega óþolandi sú tugga að við séum að samræma löggjöfina því sem gengur og gerist í ríkjum sem við berum okkur saman við vegna þess að hún er ekki samræmd. Og líkt og hv. þm. Sigmar Guðmundsson benti á í sínu andsvari áðan þá kom það fram í sömu setningunni hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að við værum að samræma löggjöfina við löggjöf Norðurlandanna sem væri hins vegar ekkert samræmd. Þetta getur augljóslega ekki staðist nokkra skoðun.

Önnur alvarleg breyting sem er verið að reyna að gera með þessu frumvarpi er að skerða möguleika fólks til fjölskyldusameiningar og setja einhverja tímafresti og einhverjar hömlur og einhverja þröskulda á fjölskyldusameiningu. Það sem enn vantar í þá umræðu er rökstuðningur fyrir því hvers vegna í ósköpunum við erum að skerða rétt fólks til fjölskyldusameiningar. Einu rökin sem hafa komið fram eru að við séum að samræma löggjöfina löggjöf annarra Norðurlanda. Það svar stenst ekki skoðun vegna þess að löggjöf Norðurlandanna er ekki samræmd að þessu leyti. Við erum að reyna að færa hana nær því sem gengur og gerist í Danmörku en Danmörk er eins og fólk veit óðum að vinna kapphlaupið á botninn í Evrópu. Norðurlöndin hafa svo sem verið virkir þátttakendur í því á undanförnum árum og við ætlum að slást í þann hóp og erum sterkur keppandi þar með þessa ríkisstjórn og Sjálfstæðisflokkinn í dómsmálaráðuneytinu.

Það hefur sýnt sig, það hafa verið gerðar úttektir, verið gerðar rannsóknir og hefur verið skoðað hvernig þetta hefur reynst. Það hefur reynst mjög illa. Það að skerða möguleika fólks til að fá fjölskylduna sína til sín hefur þveröfug áhrif á við það sem við eigum að vera að vinna að, sem er inngilding, að styðja fólk sem neyðist til að flýja heimkynni sín og koma til bláókunnugs lands, styðja það til að koma undir sig fótunum, ná fótfestu í nýju samfélagi. Það gefur augaleið, fyrir utan það að rannsóknir hafa sýnt það, að það gerir einstaklingi mun torveldara að finna sig í nýju landi ef hann fær ekki að hafa fjölskylduna sína hjá sér. Þau rök að við séum að leggja til þessa breytingu til að samræma okkar löggjöf löggjöf í Danmörku duga ekki til vegna þess að það á eftir að útskýra hvers vegna við erum að samræma löggjöf okkar einhverju sem hefur reynst illa. Það hefur ekki bara reynst illa fyrir þá einstaklinga sem um ræðir heldur fyrir samfélagið. Það er ekkert gott fyrir samfélagið að auka á kvíða og óvissu, hamla virkni, hamla líkamlegri og sálfræðilegri getu fólks til þess t.d. að læra nýtt tungumál vegna þess að það hefur ekki fjölskylduna sína hjá sér.

Hvers vegna erum við þá að gera þetta? Jú, það hefur komið fram, loksins, samt, eins og ég segi, súrsætt að það skyldi vera dregið almennilega fram í dagsljósið, að tilgangurinn er að fæla fólk í burtu, senda fólki þau skilaboð að það sé ekki raunverulega velkomið hérna nema við bara algerlega neyðumst til að taka á móti því og eigum engra annarra kosta völ og ekki nokkur leið að vísa því eitthvert annað. Ef við neyðumst til að leyfa þeim náðarsamlegast að vera þá verða þau að gjöra svo vel og sýna að þau geti lært tungumálið og annað til þess að fá að njóta grundvallarmannréttinda á borð við að dvelja með fjölskyldu sinni.

Ef við ætlum að vinna það kapphlaup á botninn að verða nógu óaðlaðandi til að raunverulega fækka umsóknum hingað til lands þá þurfum við að fara að yfirgefa gildin okkar og ég held að það vilji enginn gera það. Hættan sem steðjar að okkar gildum sem samfélags kemur innan frá, hún kemur frá okkur sjálfum. Með þeim breytingum sem við erum hér að leggja til erum við að vinna gegn okkar eigin gildum þegar við ættum að vera að byggja þau upp.

Mig langar í lokin, ég ætla ekki að fara nánar yfir frumvarpið orð fyrir orð, að ræða örlítið það sem ég held að sé algengur ótti fólks. Hvers vegna hefur umræðan breyst svona mikið? Hún hefur breyst og hún hefur orðið neikvæðari í garð flóttafólks og æ fleiri stjórnmálamenn og aðrir stökkva á þann vagn að það þurfi að gera eitthvað til að stemma stigu við þessu hræðilega flóði fólks sem er að koma hingað. Hvers vegna gerðist þetta og hvað er að gerast og hverjar eru áhyggjurnar sem fólk er þarna að lýsa? Hvaðan koma þær og hvernig bregðumst við við þeim?

Í fyrsta lagi vil ég byrja á að árétta að staðan á Íslandi þegar kemur að móttöku flóttafólks er langtum betri heldur en í langflestum ríkjum, augljóslega langflestum ríkjum heims þar sem í öðrum ríkjum, í nágrannaríkjum í Evrópu, í Miðausturlöndum, í Norður-Afríku og svona austan megin við okkur er miklu meira af flóttafólki. Það er einungis brotabrot sem nær til Evrópu í fyrsta lagi vegna þess að kerfið í Evrópu er þannig að ef þú kemur hingað og ert að flýja ofsóknir þá áttu rétt á vernd en þú mátt ekki koma hingað. Kerfið í Evrópu er þannig að það eru bara mjög fáir sem komast til Evrópu, mjög fáir. Hér eru höfð uppi gífuryrði í umræðunni um að þetta snúist um að einhver vilji lokuð landamæri og aðrir vilji opin landamæri. Við Píratar erum oft sökuð um að vilja opin landamæri. Það er bara enginn að tala um neitt varðandi landamærin í þessu máli. Þetta mál hefur ekkert með landamæri að gera eða hvað við tökum á móti mörgum, hvað við getum tekið á móti mörgum. Það hefur ekkert með það að gera. Ef þessar breytingar eru að fara að fækka umsækjendum um vernd hérna þá er það eitthvað sem við teljum á fingrum annarrar handar eða mögulega tveimur höndum. Það er ekki að fara að bjarga neinum innviðum og því síður, eiginlega þvert á móti, er það að ógna okkar innviðum, að senda þau skilaboð sem verið er að senda hér. Það er ekki verið að leysa neinn vanda með þessu frumvarpi.

Vandi sem við stöndum frammi fyrir er sá sami og öll önnur ríki heims standa frammi fyrir sem er sá að í heiminum er gríðarlega mikið af fólki á flótta og alls kyns önnur vandamál. Við stöndum engu að síður ágætlega að vígi og við eigum að vinna að því að byggja upp innviðina, tryggja inngildingu fólks vegna þess að það er þannig sem við ráðum við þetta. Það er ekki að opna landamærin. Landamæri Íslands eru mjög lokuð. Landamæri Evrópu eru gríðarlega lokuð. Við erum aðilar að Schengen-samstarfinu. Píratar hafa aldrei talað fyrir því að segja okkur úr Schengen. Schengen-samstarfið setur okkur mjög þröngar skorður um það hvernig landamærunum er stýrt hérna. Við getum haft skiptar skoðanir um þær reglur og það fyrirkomulag en það hefur enginn talað fyrir því í flokki Pírata að við göngum úr Schengen, sem eru þau lokuðu landamæri sem við búum við. Þau eru gríðarlega lokuð og það er bara verið að loka þeim meira og herða þau. Það er allt önnur umræða. Það er umræða sem fer fram á Evrópuvettvangi.

Hér erum við að tala um hvernig við komum fram við fólk sem þó kemst hingað, þrátt fyrir þessa háu múra. Það að koma vel fram við fólk tekur ekki niður neina múra. Þessir múrar eru þarna áfram. Hins vegar, með því að koma illa fram við fólk sem þó nær að komast í gegnum þær litlu og fáu glufur sem eru á þessum háu múrum vegna þess að löglegu leiðirnar til Evrópu fyrir flóttafólk eru mjög fáar — fjölskyldusameining er ein lögleg leið — með því að vera vond við flóttafólk erum við að skapa vandamál. Við erum ekki að leysa þau.

Ég vil einmitt nefna þetta að lokum. Hv. þingmenn meiri hlutans tala oft um að þau vilji fjölga löglegum leiðum fyrir flóttafólk til Evrópu (Forseti hringir.) þannig að það þurfi ekki að fara í bátana, þurfi ekki að fara þessa lífshættulegu leið. (Forseti hringir.) Fjölskyldusameining er ein einfaldasta leiðin til að skapa löglegar leiðir fyrir flóttafólk til að koma til Evrópu. Þarna erum við að tala um mjög fáa einstaklinga, mjög hógvært framlag til þess. Þið eruð full af mótsögnum.