útlendingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir ræðuna hér áðan. Ég ætla að segja það að ég er sammála hv. þingmanni í því sem laut að fjölskyldusameiningu og tengist auðvitað því máli sem hér er fyrir þinginu. Svo er maður líka mikið að velta fyrir sér þessum áformum um 2. mgr. 36. gr. sem á að fella brott samkvæmt þessu frumvarpi sem nú liggur fyrir og við erum að ræða. Mér fannst áhugavert að heyra hv. þingmann nefna það að í sumum tilfellum er þá þetta fólk sem hingað gæti komið, jafnvel þótt það sé komið með vernd í öðru ríki eða með umsókn í öðru ríki — að það séu þá einhver dæmi um að það fái vernd í öðrum ríkjum heldur en Grikklandi, af því að flestir koma þaðan, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Mér fannst mjög áhugavert að heyra þetta.
En það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um í fyrra andsvari — ég er eiginlega svolítið sammála því, mér finnst óþolandi þegar verið er að tala um að samræma íslenska löggjöf evrópsku regluverki eða þá að samræma íslenska löggjöf því sem er á Norðurlöndunum vegna þess að við vitum að Noregur og Danmörk, bara svo við tökum kannski þau lönd sem lengst eru hvort frá öðru á Norðurlöndunum, eru engan veginn með sama regluverkið. Það þekkjum við líka úr ferð allsherjar- og menntamálanefndar til Norðurlandanna fyrr á kjörtímabilinu. Það er líka mikið verið að tala um séríslenska segla. En það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um er: Úr því að það eru til einhverjir séríslenskir seglar sem laða hingað að fólk frá tilteknum ríkjum, hver er þá skýring hv. þingmanns, svo ég fái það fram, á því að fólk frá sumum löndum kemur ekkert hingað í miklum mæli en fer til annarra landa í talsvert miklum mæli? Við getum nefnt að Tyrkir leita mikið til Þýskalands. Við getum nefnt að fólk frá Bangladess leitar mikið til Frakklands og fólk frá Búrúndí og Erítreu fer í miklu hærra hlutfalli til Belgíu heldur en til Íslands, bara svo dæmi sé tekið. Þannig að ef það eru til séríslenskir seglar eru þá ekki líka til sérþýskir seglar, sérbelgískir seglar, sérhollenskir seglar og sérfranskir seglar og þar fram eftir götunum?