154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:47]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta auðvitað er eitthvað sem mér finnst liggja svolítið beint við af því að mér finnst í sjálfu sér í að umræðu um þessi mál getum við haft alls konar skoðanir á því hvernig kerfið okkar eigi að vera. Við getum haft þá skoðun að kerfið okkar eigi að vera algerlega lokað en við eigum þá að geta rökstutt þá skoðun jafnframt öðruvísi en að gera það með einhverjum rasískum undirtóni. Það sem ég er að segja er að það getur verið fullkomlega eðlileg skoðun að vilja hafa lagaverkið okkar þrengra eða víðara en það skiptir svolítið máli hvernig við fóðrum þá umræðuna. Mér finnst svo villandi að verið er að tala um séríslenskt regluverk þegar við vitum að það er líka til eitthvað sérstakt regluverk annars staðar; franska regluverkið, þýska regluverkið, norska, danska og þar fram eftir götunum. Þannig að mér finnst þetta alltaf vera pínulítil afvegaleiðing á umræðunni algerlega óháð því hvaða skoðun menn geta síðan haft á því hvernig regluverkið eigi að vera.

Annað sem ég vildi færa hérna í tal er að það hefur auðvitað, og eðlilega, verið talsverð umræða um kostnaðinn við hælisleitendakerfið hérna á Íslandi. Það er verið að nefna alls konar tölur; 20 milljarða á ári, 25 milljarða á ári, og það verður oft svolítil verðbólga í þessum tölum. Ég er þeirrar skoðunar að kostnaðurinn við kerfið hérna sé ansi mikill, óþarflega mikill og ég hef ákveðnar skoðanir á því af hverju það er. En ég er líka pínulítið þeirrar skoðunar — og ég vil draga úr kostnaðinum, bara svo það sé sagt algerlega skýrt, bara rétt eins og ég vil fara almennt vel með peninga almennings þegar verið er að útdeila þeim í gegnum ríkissjóð. En þegar verið er að tala um kostnaðinn við regluverkið þá finnst mér nú oft smurt ágætlega ofan á. Allur kostnaður Útlendingastofnunar er t.d. settur þar inn. Það er verið að tiltaka kostnað við fólk sem við höfum verið að bjóða velkomið hingað, t.d. frá Úkraínu og þar fram eftir götunum. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann um þetta. Þegar við erum að ræða um kostnaðinn í kerfinu, telur hv. þingmaður að það sé mjög mikið af óþarfakostnaði þar inni? Og þegar menn eru að nefna þessa tölu, 20–25 milljarða eða hvert menn eru komnir, er sanngjarnt að stilla málum upp með þeim hætti eða eru þarna inni kostnaðarliðir sem ættu kannski að falla undir annað?