154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:49]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég hef nú oft sagt það hér í pontu og annars staðar að ég er alveg á því að við séum að eyða allt of miklum peningum í þetta kerfi, ég ætla að segja allt of miklum. Og eyða, ég ætla að nota orðið eyða vegna þess að þessir peningar fara ekkert í að hjálpa fólki. Þeir fara fyrst og fremst í það að halda því uppi á meðan stjórnvöld taka ákvörðun. Hvers vegna tekur svona langan tíma að taka ákvörðun? Fyrst og fremst vegna tregðu í kerfinu til þess að segja já. Það er meðvituð tregða til þess að segja já. Það er allt gert til þess að reyna að vísa fólki burt. Þetta get ég stutt með gögnum og mörgum dæmum eftir áralanga reynslu í þessum málaflokki.

Það virðist vera sem svo að Útlendingastofnun líti einhvern veginn á það sem sitt hlutverk að verja landið gegn útlendingum. Þar með reynir hún að segja nei og það getur bara tekið ansi langan tíma, sérstaklega þegar um er kannski að ræða mál og málaflokk eins og þarna. Það er nefnilega þannig, ólíkt því sem mörg halda, að langflestir sem sækja um vernd þurfa vernd. Kerfið á kannski svolítið erfitt með að sætta sig við það og langar til að hafa einhver hlutföll, langar til að geta sagt nei við 20% eða 30% eða eitthvað eins og er í byggingarleyfisumsóknum — eða ég veit ekki svo sem hver samanburðurinn er þegar fólk er ósátt við það að veitingarhlutfallið sé hátt eða annað slíkt. Þessi tregða í kerfinu er að mínu mati það sem hefur lengt málsmeðferðartímann mest og það er bara gríðarlega kostnaðarsamt.

Hvað gerum við til að minnka þennan kostnað? Ég veit ekki alveg með það sem hv. þingmaður spyr um hvernig kostnaðurinn er metinn. Ég held að það sé hægt að deila um það. Ég held að það sé bæði rétt og rangt. Ég tel hann í öllu falli allt of háan og ég tel mikinn sparnað mögulegan einfaldlega með því að breyta viðhorfum í kerfinu, auka þjálfun og menntun starfsfólks Útlendingastofnunar fyrst og fremst í stjórnsýslurétti og kannski, já, (Forseti hringir.) gera það starf meira aðlaðandi með breyttu hugarfari. Ég held að það myndi (Forseti hringir.) auka skilvirkni til muna. Ég vil vekja athygli á því t.d. að kærunefnd útlendingamála hefur alltaf verið langt (Forseti hringir.) á undan Útlendingastofnun þegar kemur að þessu og það sést bæði í úrskurðum og málshraða (Forseti hringir.) og öðru. Það gengur mun betur þar af einhverjum ástæðum.