útlendingar.
Forseti Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er sammála mjög mörgu sem kemur fram í máli hv. þingmanns þó að sá stóri munur sé á okkur tveimur að hv. þingmaður er í meiri hluta hér á þingi og ég er í minni hluta og atkvæði hv. þingmanns hefur þar með meira vægi hér. Hv. þingmanni er tíðrætt um undanþágur sem á að gera á þessum skilyrðum til fjölskyldusameiningar og talar um að þær séu mikilvægar undanþágur frá þessum þröskuldum sem eru settir fyrir fjölskyldusameiningu. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: En til hvers er reglan? Til hvers er reglan sem undanþágurnar eru á? Til hvers er verið að setja þröskulda fyrir fjölskyldusameiningu? Hvers vegna eru þið að gera það? Ég skil það ekki enn þá, ég skil ekki enn þá rökin fyrir því vegna þess að rökin sem eru færð fyrir því ganga gegn því sem síðan er sagt að sé tilgangur málsins, þannig að ég skil ekki alveg.
Mig langar til að biðja hv. þingmenn líka um að árétta það sem hún sagði, ef ég skildi það rétt. Mér heyrðist hv. þingmaður segja að með þessu frumvarpi séum við að fara í rétta átt. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það sé rétt skilið að hún telji að með þessu frumvarpi, þeim breytingum sem hér er verið að gera, séum við að fara í rétta átt. Þá langar mig að spyrja út í afnám 2. mgr. 36. gr. sem var sannarlega tillaga sem var gerð í fyrstu útgáfu frumvarpsins sem við Píratar höfum kallað ógeðismálið og fór því miður hér í gegn í fyrra og hefur valdið miklum skaða á okkar kerfi, ríkissjóði og velferð fólks og öðru. Það að afnema 2. mgr. 36. gr. er ekki ný hugmynd og hv. þingmaður barðist einna mest gegn (Forseti hringir.) þeirri breytingu, fékk hana, að eigin sögn, út úr málinu (Forseti hringir.) á sínum tíma og var mjög stolt af því. Nú er allt í einu hv. þingmaður til í þessa breytingu. Hvað breyttist?