154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:15]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ætla að byrja á öfugum enda og ræða 2. mgr. 36. gr. Það er rétt sem hv. þingmaður sagði að það var fyrir tilstilli VG, og þá væntanlega mín, í nefndinni á sínum tíma sem 2. mgr. 36. gr. var inni. Það sem gerðist við meðferð þessa máls var að ég var með mikinn varnagla við þetta í upphafi vinnunnar. Það sem breytti afstöðu minni, svo ég svari skýrt þeirri spurningu hvað breytti minni afstöðu, var umsögn Flóttamannastofnunar. Ég hef reynt að fylgja þeim ráðleggingum, fylgja þeim leiðum sem okkar besta fólk kemur með, eins og var líka mikið rætt hérna í fyrra; af hverju erum við að hunsa umsagnir frá þessum og hinum, af hverju erum við að fylgja umsögnum frá þessum og hinum? Ég reyni fyrir mig að kafa ofan í þessar umsagnir, heyra rökin og skilja og fyrir mér skiptir miklu máli að hafa fengið það skriflegt frá Flóttamannastofnuninni að þau geri ekki athugasemd við þetta. Þess vegna hef ég breytt afstöðu minni í því máli. Svo man ég ekki alveg hverjar hinar tvær spurningarnar voru. (ArnG: Til hvers er verið að setja þessa þröskulda fyrir fjölskyldusameiningu?) Já. (ArnG: Og telurðu þetta vera framför?) Nú er ég örugglega fallin á tíma. En til hvers er verið að setja þröskulda fyrir fjölskyldusameiningu? Alveg eins og kom fram í máli mínu hér áðan er ég ekki viss um að tímarammi sé bestur í því. Ég held að það sé gagnlegt fyrir fólk sem bíður fjölskyldusameiningar að inngildast (Forseti hringir.) í samfélagið og vera komið á betri stað þegar fólkið þeirra kemur. Þess vegna tel ég undanþágurnar mikilvægar.