útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, sérstaklega varðandi það að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi ekki gert athugasemdir við afnám 2. mgr. 36. gr. Þá langar mig til þess að spyrja hv. þingmann annars vegar hvort hún hafi skilið hvers vegna Flóttamannastofnun lagðist ekki gegn því, og ég geri ráð fyrir því, en það er sem sagt vegna þess að þessari reglu sem er beitt þarna er beitt í öðrum ríkjum á grundvelli ákvæða reglna í þjóðarétti, grundvallarreglna þjóðaréttar um að það megi ekki senda fólk þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu, og það er það sem önnur ríki eru að gera. Flóttamannastofnun leggur sem sagt í rauninni blessun sína yfir það að 2. mgr. 36. gr. sé afnumin á þeim forsendum að 3. mgr. 36. gr. yrði þá beitt. Vandinn er sá að 3. mgr. 36. gr. hefur aldrei verið beitt né forvera hennar þegar 2. mgr. var ekki til. Þannig að mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns: Hvers vegna telur hv. þingmaður að það eigi eftir að breytast? Nú er 2. mgr. 36. gr. m.a. sett til að fylla í það gat og hægt að halda því fram að það hafi verið til þess að samræma okkar framkvæmd. við það sem gengur og gerist í öðrum ríkjum. Er eitthvað sem bendir til þess að íslensk stjórnvöld séu að fara að beita ákvæðum sem þau hafa aldrei nokkurn tímann beitt? Af hverju ættu þau að byrja á því núna?