154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna en hún hljómaði eiginlega frekar eins og ræða við 1. umræðu um frumvarp því að það mætti vel skoða eitthvað og hann væri til samtals um eitthvað en minna fór fyrir raunverulegri afstöðu hv. þingmanns (SGuðm: Nú?) og flokks hans til málsins. Nema ég kannski skynja að Viðreisn og Píratar virðast vera svolítið samhuga í þessu máli, svona almennt á móti frumvarpinu heyrist mér, ef ég skil hv. þingmann rétt. En það væri kannski ágætt að fá það fram: Styður hv. þingmaður þær breytingar sem við erum að gera varðandi kærunefndina? Styður hv. þingmaður þær breytingar sem við erum að gera (Gripið fram í.) varðandi styttingu dvalarleyfistíma? Þú sagðir að þú værir til samtals um hlutina (Gripið fram í.) og það mætti skoða það. En ef hv. þingmaður styður það þá er það mjög til bóta. Það er gott og ég þakka fyrir það.

En telur hv. þingmaður í alvöru talað að öll umræða þeirra sem til þekkja og hafa mætt á fundi nefndarinnar og hafa talað um eitthvað sem sumir vilja kalla segla eða séríslenska reglu, eins og 2. mgr. 36. gr., að það hafi engin áhrif að 200–300 manns komi á hverju ári til Íslands þrátt fyrir að vera með vernd í öðru Evrópuríki og sæki hér um vernd, eitthvað sem þekkist varla á hinum Norðurlöndunum? Það hlýtur að segja okkur að það hefur áhrif á verndarkerfið. Við vitum að þetta er málaflokkur og að þetta eru umsóknir sem taka mikinn tíma í meðförum hjá Útlendingastofnun, þannig að reyna að halda því fram að það sé enginn segull í því, að það hafi engin áhrif og einmitt að fólk sem er með vernd í Grikklandi ákveði að koma til Íslands en ekki Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar eða Finnlands — er það í alvöru afstaða hv. þingmanns? Ég spyr þá: Ef það er komið í ljós að Viðreisn mun styðja breytingar á kærunefndinni og styttingu á dvalarleyfistímanum en styðji ekki, ef ég skil það rétt, breytingar er varða fjölskyldusameiningu, hver er þá raunverulega afstaðan varðandi 2. mgr. 36. gr.? Styður Viðreisn ekki að sú séríslenska regla verði tekin út úr lögunum?