154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Seglar og mismunandi seglar innan ESB. Nú vinnur ESB, sem ég veit að hv. þingmaður er mjög hrifinn af, að samræmdu regluverki varðandi þennan málaflokk og ég get ekki betur skilið en að þau vilji einmitt hafa mjög samræmdar reglur. Stundum geta seglarnir verið tungumál, íslenska er ekki segull hvað það varðar. Þannig að ég vil þá spyrja hv. þingmann. Það er rétt að vernd í Grikklandi er ekki sama og vernd á Ísland. Velferðarkerfið í Grikklandi er ekki sambærilegt við velferðarkerfið á Íslandi. Hvernig vill hv. þingmaður nálgast þá stöðu að velferðarkerfin í Evrópulöndunum eru bara alls ekki þau sömu? Við búum í þessu góða velferðarsamfélagi, sem jú virðir mannréttindi og við ætlum svo sannarlega að gera það áfram. Hvernig eigum við að nálgast þá staðreynd að fólk vill engu að síður koma frá þessum löndum, þrátt fyrir að það sé með vernd? Er þá hv. þingmaður að segja að það sé eðlilegt að verndarkerfið á Íslandi taki á móti (Forseti hringir.) fólki sem hefur fengið vernd annars staðar vegna þess að velferðarkerfið þar er ekki jafn gott og íslenska velferðarkerfið?