útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Ég get auðvitað svarað þessu með annarri spurningu: Finnst okkur rétt, Íslendingum, að senda fólk sem hingað kemur og er í hjólastól og þarf mikla umönnun og kemur af götunni í Grikklandi aftur þangað sem því bíður gatan, búseta undir brúm, betl á götunum? Erum við þannig innréttuð að við viljum sjálfkrafa og algerlega fortakslaust afgreiða fólk sem er með fötlun eða býr við geðrænar áskoranir eða er jafnvel þolendur mansals eða hefur þurft að þola einhverja kúgun og ofbeldi í þeim hættulegu aðstæðum sem eru á götunni í Grikklandi og senda það til baka? Ég á mjög erfitt með það, bara manneskjan ég, að segja: Já, við ætlum bara að hafa reglurnar okkar svona. Við ætlum ekkert að taka tillit til þessara þátta. Ég á mjög erfitt með að gera það, ofur einfaldlega vegna þess að ég finn til með þessu fólki. Þannig að ég svara þessari spurningu bara nákvæmlega þannig. Það er ekkert hægt að taka (Forseti hringir.) mennskuna og mannúðina og einhverja samlíðan gagnvart fólki sem er í hræðilegum aðstæðum (Forseti hringir.) og yppa bara öxlum og segja: Neibb, farðu bara á götuna í Grikklandi. Ég á bara mjög erfitt með að gera það (Forseti hringir.) og ég held að innst inni þá eigum við það flest.