154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:51]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Honum varð svolítið tíðrætt um innviðina, að þeir væru nú ekki undir eins miklu álagi og komið hefur fram. Ég er að sjálfsögðu því algerlega ósammála. (SGuðm: Ég sagði það ekki.) Að minnsta kosti var hv. þingmaður að tala um að innviðirnir gætu alla vega borið þetta álag, ef ég skildi hann rétt. (Gripið fram í.) Þá er rétt að hv. þingmaður leiðrétti það hér á eftir. En ég vil aðeins benda á eitt. Nú er það þannig að síðan 2019 hafa borist jafn margar umsóknir um hæli hér á landi og búa á Selfossi, fjöldinn er sá sami. Á Selfossi eru þrír grunnskólar, fjórir leikskólar, eitt sjúkrahús og einn framhaldsskóli. Það má þá færa rök fyrir því að til að halda þessu þjónustustigi fyrir þann fjölda sem er að koma á þessu tímabili þá þurfum við að byggja þrjá grunnskóla, fjóra leikskóla, eitt sjúkrahús og einn framhaldsskóla. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji það bara eðlilegt að sveitarfélag eins og Selfoss, eða bara við almennt, ráðist í slíkar framkvæmdir til að halda í við þann hóp sem kemur á þessu tímabili. Við verðum að átta okkur á því, hv. þingmaður, að kjarni þessa máls, þessa frumvarps, er að draga úr þeim fjölda sem hingað kemur til landsins og hafa regluverkið hið sama og í kringum okkur. Það er það sem skiptir verulegu máli í þessu öllu saman. En ég hef rætt þessi álagsmál við Reykjanesbæ og átt þar fund með bæjarstjóra sem hefur sagt það opinberlega að álagið á innviði bæjarins sé komið að þolmörkum og yfir þolmörk. Þá hefur hann verið að tala um hælisleitendur. Ég tek það skýrt fram. Hefur hv. þingmaður einhverjar aðrar upplýsingar (Forseti hringir.) frá Reykjanesbæ eða bæjarstjóra þess efnis að það sé ekki þetta álag sem var bæjarstjóri, er að lýsa þar?