útlendingar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir andsvarið. Já, ég hef auðvitað mjög miklar áhyggjur af skautun og ég hef lengi gagnrýnt það í umræðum um þetta mál að þegar það er verið að etja saman hópum þá gerir það samfélaginu ekki gott. Það er ekki gott að tala um það að við getum ekki gert þetta því að þá verður þessi hópur út undan og þar fram eftir götunum. Þetta kristallast mjög oft í umræðu um útlendinga, því miður. Það er ekki hægt að gera hitt og þetta fyrir gamalt fólk vegna þess að hér eru útlendingar. Það er ekki hægt að gera vel við öryrkja og nú eru allt í einu Grindvíkingar orðnir hluti af þessum hópi sem einhvern veginn er að þjást vegna þess að við erum hér með hælisleitendakerfi. Auðvitað er það svo að við þurfum að dreifa því álagi sem verður á öllum okkar kerfum, og ég er ekki bara að tala um hælisleitendakerfið heldur bara almennt, þannig um landsvæðin að einhver áhrif af þessu hvíli ekki bara á einhverjum einum stað, (Gripið fram í.) hvað þá á einhverjum einum hópi fólks. Það er úrlausnarefni sem þessari ríkisstjórn hefur gjörsamlega mistekist í en það er hins vegar ekki hælisleitendum að kenna.
Ég held að það sé aldrei farsælt fyrir umræðuna í samfélaginu að etja saman hópum og ég hef alltaf verið mjög skýr með það að menn geta alveg haft þá skoðun að landið eigi að vera lokað og að við eigum ekki að taka á móti neinum hælisleitendum en gert það samt með virðingu og vinsemd gagnvart því fólki sem það vill ekki fá hingað inn. Það er vel hægt að vilja hafa landið algerlega lokað án þess að fara í þá vegferð. Þetta er nefnilega tvennt eins og ég er alltaf að segja; þetta er annars vegar hvernig kerfið okkar er og hvernig við byggjum það upp og síðan er þetta umræðan. Við erum svolítið að missa umræðuna hérna á Íslandi í útlendingamálum, einkum og sér í lagi þegar kemur að hælisleitendum, úr böndunum og þar þurfum við, held ég, öll að taka okkur taki og ég ætla ekkert að undanskilja sjálfan mig í því.