útlendingar.
Forseti. Ég ætla að gera grein fyrir breytingartillögu sem hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir leggur fram. Hún fjallar um afturköllun á þessum skerðingum sem við höfum séð afleiðingarnar af á undanförnum dögum og vikum. Það er augljóst hvers konar mistök voru gerð þar þannig að það er best að leggja fram slíka breytingartillögu og laga þetta.
Þessi umræða um þessi blessuðu útlendingamál er sem oftar dálítið úti í skurði, því miður. Mér finnst nefnilega mjög áhugavert hvernig ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um útlendingamál, koma fram með einhvern sameiginlegan skilning á því hvað þurfi að gera, sem var einhver yfirlýsing sem var uppfull af ofsalega fallegum orðum. Ég held að ég geti kvittað undir þau öll þau markmið sem komu fram þar, það er mjög einfalt að gera það. Ég get líka alveg kvittað undir orð hæstv. forsætisráðherra í dag þar sem hann sagði að hann vildi uppfylla lágmarkskröfur sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi flóttafólks. Að sjálfsögðu ættum við að vilja gera betur, auðvitað, en a.m.k. lágmarkskröfurnar. Augljóslega.
Vandinn er sá að þegar maður skoðar lágmarkskröfurnar, sem ríma svo sem ágætlega við það hvernig við viljum haga útlendingamálum í framtíðinni, og í rauninni líka þessa yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um sameiginleg markmið og jafnvel er yfirlýsingin kannski eilítið betri en lágmarkskröfurnar gera ráð fyrir, en sjáum svo hins vegar frumvörpin, breytingarnar, stjórnsýsluframkvæmdina og hvernig í rauninni orðin eru þegar þau koma í verk, þá rímar það ekki alveg saman, það sem ráðherrarnir segja og hvað stjórnsýslan og ríkisstjórnin síðan gerir. Það er vandamálið þegar allt kemur til alls. Það er ómögulegt að fá þau til að viðurkenna að þarna fara ekki saman hljóð og mynd. Við sjáum dæmin sem koma í fjölmiðlum oft og mörgum sinnum og við spyrjum: Hvernig passar þetta við markmiðin um að fara eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi flóttafólks? Hvernig passar þetta við mannréttindakafla stjórnarskrár Íslands og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eða Evrópu? Þá eru einfaldlega ekki til nein svör. Það er alltaf gripið til þess að segja: Við getum ekki rætt einstök mál. Ég bara verð að segja að ég þoli ekki þessa afsökun, ég er bara gjörsamlega kominn með ógeð á henni af því að í öllum aðstæðum þar sem koma upp einhver vandamál þá eru það vandamálin sem benda á almenna galla í kerfinu. Við erum að leika okkur í tölvunni og upp kemur einhver villa í tölvuleiknum eða eitthvað svoleiðis, þá er það galli í kerfinu. Við þurfum að nota þann galla, hvernig hann gerðist, til þess að reyna að laga kerfið í heildina þannig að við verðum að geta notað einstök dæmi til að spyrja okkur: Er þetta almennt vandamál í kerfinu? Ef það kemur annar einstaklingur sem lítur út fyrir að uppfylla öll skilyrði og allar lágmarkskröfur samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi flóttafólks, mun sami galli koma í ljós o.s.frv.? Ef svo er þá erum við ekki að tala um einstaka dæmi, þá erum við að tala um almennan galla á löggjöfinni og framkvæmdinni. Það er það sem við þurfum. Við þurfum alltaf að taka það sjónarhorn þegar við skoðum einstök dæmi sem virðast ekki passa við það sem er sagt um það hversu mannúðlegt kerfið á að vera.
Ég veit ekki hversu mörg dæmi er hægt að telja upp bara á þessu ári sem utan frá séð er ekki hægt að sjá að uppfylli skilyrðin hvað mannúð varðar. Mansalsdæmin eru augljósustu dæmin hvað það varðar. Fólk í þeim aðstæðum á rétt á vernd. Þá er rosalega erfitt að skilja hvað það er sem gerir að verkum að þau dæmi gefa ekki rétta vernd og við fáum engar skýringar á því, nema: Ég get ekki rætt einstök dæmi. En dæmin eru orðin svo mörg að það er hægt að taka — æ, ég veit það ekki. Það er þess vegna sem það er svo erfitt að eiga þessa umræðu af því að ráðamenn vilja ekki og segjast ekki geta talað um þessa galla sem birtast okkur mjög reglulega.
Ef við ætlum í alvörunni að ná þeim markmiðum að geta náð einhverri sátt um það hvernig og í hvaða aðstæðum fólk á að fá vernd og síðan ekki vernd, af því að það uppfyllir ekki skilyrðin, þá þurfum við að þora að tala um þessi einstöku dæmi sem benda okkur á það að hérna lítur út fyrir að vera galli og við þurfum að svara: Af hverju greip kerfið ekki þennan einstakling? Hvað er það í kerfinu sem bilaði miðað við þær forsendur sem við sjáum? Er verið að ljúga um forsendurnar? Það er náttúrlega rosalega mikið talað um það, í einstaka dæmum, en við verðum samt að þora og verðum samt að reyna, annars myndast tortryggni og misskilningur á því hvernig þetta í raun og veru virkar og það leiðir til þess að kerfið molnar niður. Við berum ekki traust gagnvart því sem við erum búin að vera að reyna að setja hérna upp sameiginlega með, eins og ráðamenn segja, mannúð að leiðarljósi. Það er rosalega erfitt að bera saman mörg þessara dæma við einmitt mannúðarsjónarmið.
Ég kalla einfaldlega eftir því að ef það á í alvörunni að ná þessum markmiðum þá þurfa ráðamenn í alvörunni að svara þessum spurningum og útskýra fyrir okkur af hverju kerfið virðist vera að bregðast þeim sem þurfa í alvörunni á vernd að halda. Ég og Píratar almennt erum sammála um þau réttindi og þær skyldur sem við höfum undirgengist með tilliti til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks á flótta. Það er grundvöllurinn í því sem við gerum, alltaf. Auðvitað viljum við efla þau réttindi. Það gerist í skrefum, vonandi með öðrum þjóðum líka, af því að tilefni þessa samnings eftir hörmungarnar í seinni heimsstyrjöldinni er eitthvað sem við viljum ekki sjá gerast aftur.
Ég kalla enn eftir því að við gerum betur. Frumvarpið sem var samþykkt fyrir rétt rúmu ári síðan gerði ekki betur. Það er mjög augljóst að þeir gallar sem eru komnir í ljós á þeim breytingum voru allir þeir gallar sem við vöruðum við. En það er ekki viðurkennt. Það er ekki sagt: Já, þið höfðuð rétt fyrir ykkur í þessu. Nei. Það er bara áfram gakk, við skulum áfram reyna að útiloka fólk með því að hella peningum í það að finna einhverjar afsakanir fyrir því að viðkomandi eigi ekki rétt á vernd. Það er rosalega kostnaðarsamt. Það er rosalega kostnaðarsamt að vera í þessari afneitun. Án þess að viðurkenna í rauninni gallana þá getum við ekki fundið góðar lausnir.
Ég kalla eftir góðri umræðu. Ég kalla eftir heiðarlegri umræðu, ekki þessari klassísku pólitík þar sem er bara verið að segja hlutina og endurtaka þá, sama hvaða gagnrýni kemur. Gagnrýnin á þetta frumvarp er mjög skýr frá umsagnaraðilum. Það verður mjög áhugavert að sjá hvort fullyrðingar um 3. mgr. 36. gr. haldi, ef 2. mgr. fer. Það verður rosalega áhugavert að sjá hvort það er satt, hvort það verður satt í framkvæmd. Það var ekki satt með undanþágurnar sem áttu að vera vegna þjónustusviptinganna. Það hélt ekki. Samt héldu ráðherrar og þingmenn því fram hérna að það væri alveg gulltryggt. Það var ekki gulltryggt. Maður veltir því fyrir sér af hverju það var þá ekki gengið í að laga það sem ráðherrar og þingmenn sögðu hérna að ætti að vera gulltryggt en var það síðan ekki. Það er ekki verið að laga það. Hvað á maður þá að halda? Hvernig eigum við þá að nálgast þessa umræðu á einhvern heiðarlegan hátt í þessum blessaða sal hérna? Ég alla vega geri hvað ég get og vona að fólk hlusti.