útlendingar.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður og formaður nefndarinnar er einmitt búinn að koma hingað upp í dag og fara í nákvæmlega það sem ég hef verið að vara við. Að koma hérna núna — af því að ríkisstjórnarflokkarnir eru búnir að ná saman alla vega tímabundið sín á milli, við eigum eftir að sjá hvernig reynslan verður, alveg eins og síðast þegar útlendingalögunum var breytt — og segja: Já, þið eruð svona og þið eruð svona en við erum hinsegin. Viðreisn ætlar að gera þetta með þessum hætti, eða hvað? Svo er verið að ýja að alls konar hlutum. (BHar: Ég er að spyrja þig. Svaraðu bara.) — Ég heyri það, hv. þingmenn, að það er rétt hjá forseta að gefa friðarmerki. Það sem Viðreisn leggur áherslu á er að við verðum með útlendingakerfi, útlendingalög sem eru mannúðleg. Við setjum það í fyrsta sæti en Sjálfstæðisflokkurinn einhvers staðar aftarlega, heyrist mér, miðað við hvernig hv. þingmaður er að gjamma hér fram í. Við viljum tryggja skilvirkni af því að í skilvirkni getur líka falist mannúð, að afgreiða hluti hratt og vel. En reglur þurfa að vera skýrar til þess að taka utan um fólk og þurfa að vera byggðar á grundvelli alþjóðasamninga og þeirra skilmála sem við höfum undirgengist. Mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn sveigja svolítið fram hjá þeim skilmálum sem við höfum undirgengist alþjóðlega. (Gripið fram í.)Við eigum að sýna ábyrgð í málaflokknum. Við eigum að forðast skautun. Það er það sem við í Viðreisn höfum verið að berjast fyrir. Það var svolítið merkilegt að sjá það að fyrst var tekið vel í bréfið, síðan er gerð breyting á ríkisstjórninni og þá hætta þessi vinnubrögð þvert á flokka. (Gripið fram í: Nei.) Þá er bara fínt að fá það upplýst hér að ríkisstjórnarflokkarnir eru tilbúnir að ná enn frekari (Forseti hringir.) samhljómi. Mér finnst það skipta máli. Ég tel að rammarnir þurfi að vera skýrir og breytingar (Forseti hringir.) þurfa helst að þola ríkisstjórnir og ekki síður (Forseti hringir.) ráðherraskipti, sem hafa ekki verið ófá undir forystu Sjálfstæðisflokksins, og eru kannski hluti (Forseti hringir.) af þeirri óreiðu á striga sem er einmitt í útlendingamálum.
(Forseti (ÁsF): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutímann.)
Já, ég ætlast til að forseti leyfi mér …
(Forseti (ÁsF): Gefið forseta hljóð. Ég vil biðja hv. þingmenn að virða ræðutíma annarra þingmanna og hafa hljóð í þingsalnum.)