154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[21:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég biðst afsökunar á að hafa gjammað aðeins fram í því mig langaði að fá svar við spurningu og ég þekki hv. þingmann nefnilega svo vel að því að óska gjarnan eftir því þegar aðrir eru hér í ræðustól. Nú langar mig bara að hvetja hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, til að kynna sér það frumvarp sem hér liggur fyrir, fara yfir þau minnisblöð sem liggja fyrir um þetta mál og lesa yfir nefndarálitið. Þetta frumvarp sem hér liggur undir og öll sú löggjöf sem við höfum farið með í gegnum þetta þing er einmitt með mannúð og skilvirkni í fyrsta sæti. Við erum ávallt að virða alþjóðlegar skuldbindingar og alveg eins og hv. þingmaður kom inn á er mikilvægt að horfa til hinna Norðurlandanna sem við tökum okkur gjarnan sem fyrirmyndir sem eru líka að virða alþjóðlegar skuldbindingar. Og fyrirgefið ef maður er hér eftir margar klukkustundir af umræðu um breytingar á útlendingalögum í fyrra og svo aftur núna, komin í 2. umræðu, að óska eftir því að flokkarnir hafi einhverja skýra afstöðu til málaflokksins. Ég er svo hjartanlega sammála, hv. þingmenn, þegar talað er um skautun. Það á ekki að fara í þann farveg. En við verðum engu að síður, hv. þingmaður, að þora að taka umræðuna um þær áskoranir sem bíða okkar og við verðum líka að þora að bjóða lausnir við þeim áskorunum án þess einmitt að fara í skautunarumræðuna. Já, hv. þingmaður, stjórnarflokkarnir eru búnir að koma sér saman um stefnu og við hana stöndum við. En það er alveg augljóst að Viðreisn er ekki með stefnu í málaflokknum.