154. löggjafarþing — 113. fundur,  16. maí 2024.

útlendingar.

722. mál
[21:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er alltaf gaman að hlusta á þetta um íslenskar sérreglur og síðan er allt í einu hoppað yfir í danska sérreglu, eins og hún sé eitthvað skárri heldur en sú íslenska. Er það skárra að þeir séu að brjóta á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Eigum við þá bara að fylgja þeim í því? Er það bara fínt? Já, greinilega finnst hv. þingmanni það. Ég held nefnilega að við þurfum að átta okkur á því að það eru, já, ákveðnar grundvallarreglur í þessum samningi og já, byrðin er ekki jöfn. En prófaðu þá að tala við t.d. Grikkland eða Tyrkland, talaðu við þá um það hvað byrðin er mikil. Þar fá þeir nær alla flóttamenn sem koma frá Miðausturlöndum og Afríku og Ítalía bætist þar við t.d. líka. Þannig að já, þetta dreifist ekki jafnt. Já, ég er líka sammála því að við eigum ekki að setja alla hælisleitendur sem koma hingað á Reykjanes bara af því að það er góður staður. Það er gott að hafa það í huga að það er ákvörðun ríkisins að setja fólk þangað, jafnvel í óþökk Reykjanesbæjar. Það væri hægt að dreifa fólkinu mun meira en það virðist ekki vera vilji ríkisins að gera það.

Enn og aftur langar mig að enda á því að segja að ég er hjartanlega sammála hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur; ef við hefðum talað hér saman í stað þess að vera alltaf bara í því að keyra í gegn. Það má ekkert breyta, það geta ekki komið góðar lausnir neins staðar annars staðar frá. Þá verður meiri skautun. Þá munum við enda með ómannúðlegri hluti í stað þess að finna góðar lausnir á erfiðu máli.