útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingheimi fyrir góða og málefnalega umræðu sem við höfum átt hér í dag um þann viðkvæma málaflokk sem málefni útlendinga er. Það er ljóst að þessi málaflokkur er krefjandi og löngu ljóst að við verðum að ná betri stjórn á honum. Við erum ekki eyland að þessu leyti og hafa aðrar þjóðir Evrópu þurft að takast á við verulega aukinn fjölda flóttamanna en ekkert þeirra hefur tekist á við þann fjölda sem við höfum þurft að takast á við. Á rúmum áratug hefur umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgað hér á landi um rúmlega 3.700%. Þetta þekkist hvergi annars staðar. Ef við berum okkur saman við Norðurlöndin sem eru þó að takast á við miklar áskoranir, tökum við á móti hlutfallslega langflestum umsækjendum um alþjóðlega vernd, hvort sem er með eða án fjöldaflótta frá Úkraínu. Án Úkraínu erum við árlega að taka á móti 580 manns á hverja 100.000 íbúa á meðan Danir taka á móti 43, Svíar 159, Noregur 75 og Finnar 84. Hefur þessi mikla aukning umsókna reynt mikið á alla okkar innviði.
Flóttamannakerfið er neyðarkerfi ætlað fólki sem óttast um líf sitt og frelsi. Það er nauðsynlegt að fólk sem hingað kemur og þarfnast raunverulegrar verndar gegn ofsóknum og stríði fái vandaða og skjóta úrlausn sinna mála. Alþjóðleg vernd er ekki dvalarleyfisflokkur fyrir einstaklinga sem eru í leit að betri lífskjörum. Því er brýnt að við horfum með raunsæjum og skynsamlegum hætti á málaflokkinn í heild sinni og það hefur ríkisstjórnin nú gert. Þann 20. febrúar sl. samþykkti ríkisstjórnin heildarsýn í málaflokknum. Þar kom fram það skýra markmið að fækka umsóknum frá einstaklingum sem eru ekki í þörf fyrir alþjóðlega vernd, þar á meðal einstaklingum sem hafa nú þegar hlotið alþjóðlega vernd í öðru Evrópuríki, með lagabreytingum og skýrum skilaboðum stjórnvalda út á við. Einnig var lögð áhersla á að auka skilvirkni, draga úr kostnaði og tryggja aðlögun þeirra sem setjast hér að.
Frumvarpið sem hér er rætt uppfyllir öll markmið þessarar heildarsýnar. Þær breytingar sem við erum að leggja til í þessu frumvarpi miða m.a. að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum og þá einkum á Norðurlöndunum. Taka þessar breytingar fyrst og fremst á málsmeðferðarreglunum. Þá er einnig stefnt að því að auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar, tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns og jafnframt fækka tilhæfulausum umsóknum. Það er mjög mikilvægt að við komum þessum breytingum í gegn vegna þess að með breyttu regluverki náum við best stjórn á málaflokknum, veitum betri þjónustu og stuðlum að jöfnum tækifærum og þátttöku í samfélaginu.
Ég vil ítreka aftur þakkir mínar til hv. allsherjar- og menntamálanefndar sem og til þingmanna fyrir góðar umræður hér í dag.