154. löggjafarþing — 114. fundur, 17. maí 2024.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi fyrsti varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Eva Sjöfn Helgadóttir. Eva Sjöfn Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.