Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Undanfarið hef ég fylgst af aðdáun með umfjöllun um kvenlækna sem flettu ofan af launamun kynjanna á Landspítalanum. Umfjöllunin hefur reyndar ekki farið nógu hátt en þær komust að því að karlkyns sérlæknar, sem voru ráðnir á eftir þeim, fengu allir hærri laun en þær. Þær virðast hafa haft þó nokkuð fyrir því að grafa þessar upplýsingar upp og eiga hrós skilið fyrir að taka þennan slag.
Það sem vekur þó sérstaka athygli í þessari umfjöllun er auðvitað hið augljósa, sem er það að Landspítalinn er einn þeirra fjölmörgu stofnana sem greiðir fyrir hina alræmdu jafnlaunavottun lögum samkvæmt. Og ég sem sérstök áhugamanneskja um jafnlaunavottun hlýt að spyrja mig að því hvernig áralöng mismunun fólks með sömu menntun og ábyrgð getur viðgengist þrátt fyrir þetta apparat. Svarið liggur í augum uppi. Jafnlaunavottun er ekki bara kostnaðarsamur baggi á atvinnulífinu og opinberum stofnunum heldur hreinlega skaðvaldur. Fyrirtæki og stofnanir sem hafa þessa dyggðaskreytingu geta hreinlega komust upp með að mismuna starfsfólki sínu, enda með það uppáskrifað að það sé allt upp á tíu hjá þeim í jafnlaunamálum. Þetta er alger hneisa.
Ég hef lagt fram þingmál um þetta fyrirbæri, jafnlaunavottun, nú síðast frumvarp um að vottunin skuli vera valkvæð en ekki skylda. Þarna er komin enn ein ástæðan fyrir því að afnema þennan óskapnað og ég vona svo innilega að enn fleiri komi á þann vagn hér í þinginu. Það er kominn tími til að við gerum alvöruátak hér í að létta byrðum af atvinnulífinu. Þetta er gott dæmi, en sömuleiðis blýhúðunarfarganið sem virðist hafa lekið hér í gegn. Þar hef ég sömuleiðis lagt fram frumvörp til afnáms.
Kæri þingheimur. Gerum átak í þessum efnum. Leysum fyrirtæki og stofnanir úr viðjum sem við höfum komið þeim í.