Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mér finnst mikilvægt að við höldum því líka til haga sem vel er gert. Í gær fór fram umræða um mikilvægt mál, lög um útlendinga, um alþjóðlega vernd, hér í þessum sal. Þetta er vandasamt og umdeilt mál sem þarfnast eðlilega mikillar umræðu. Mér fannst umræðan í gær bera vott um hófstillingu og hún fór afar vel fram. Mér finnst mikilvægt, forseti, að halda því til haga þegar vel er gert. En þegar bikarinn hafði verið tæmdur í þessari ágætu umræðu í gær þá höfðu margir áhyggjur af því að hún myndi síðan dragast á langinn, jafnvel dögum saman, án þess að neitt bættist við eins og við höfum þekkt áður. Sem betur fer gerðist það ekki og ég verð að hrósa þingheimi fyrir það hvernig þessi umræða fór fram. Mér finnst að við þurfum að nota þetta tækifæri til að halda áfram þeim góðu störfum sem við getum sinnt hér með eðlilegum skoðanaskiptum en látið störfin ganga vel. Mér finnst það mikilvægt núna á lokakaflanum, við þekkjum hvernig hann er. Það eru mörg járn í eldinum og það þarf að klára mörg mál. Við þurfum að sýna sjálfum okkur og þjóðinni að við náum samstöðu um þessi mál og við klárum þau með sóma. Sýnum hvert öðru að störf þingsins skipta okkur öll miklu máli og við eigum að hafa á þeim skoðanir en látum þau ganga vel fyrir sig.