154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Störf þingsins.

[10:50]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í gær féll dómur í Tyrklandi í hinu svokallaða Kobani-máli þar sem 108 einstaklingar hafa beðið niðurstöðu árum saman. Meðal þeirra sakfelldu er fyrrverandi leiðtogi HDP lýðræðisflokksins sem fékk 42 ára dóm. Árið 2014 réðust ISIS-liðar á bæinn Kobani í Sýrlandi, nálægt tyrknesku landamærunum. Yfirvöld í Tyrklandi lokuðu landamærum sínum fyrir þjáðu og slösuðu fólki sem flúði ástandið á sama tíma og ISIS-liðum var hleypt í gegn og gefinn forgangur að heilbrigðisþjónustu. Í kjölfarið brutust út mótmæli þar sem yfir 40 létu lífið en lögreglan beitti mikilli hörku gegn mótmælendum.

Kobani-málið er fyrst og fremst skrípaleikur í boði Erdogan forseta og hans róttæku ríkisstjórnar sem felur í sér öfgaþjóðernisstefnu til að bæla niður raddir Kúrda sem berjast fyrir frelsi og sjálfsákvörðunarrétti. Þessi aðför að lýðræði og réttlæti sem við horfum upp á snýr ekki bara að hinum 108 sem ákærðir voru fyrir meinta aðkomu að Kobani-málinu. Þúsundir sitja í tyrkneskum fangelsum fyrir það eitt að vera Kúrdar eða félagar í systurflokki okkar Vinstri grænna.

Virðulegi forseti. Einræðisherrann Erdogan hefur ekki þessi völd í neinu tómarúmi. Í uppsveiflu öfgahægristefnu í heiminum, þar sem grafið er undan lýðræði, skoðanafrelsi, kvenfrelsi og réttlæti, verðum við sem þjóð sem byggir á þessum sömu gildum að láta í okkur heyra.

Virðulegi forseti. Ég fordæmi aðför tyrkneskra stjórnvalda gegn lýðræði og mennsku.