Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Um helgina verður því fagnað að nýtt sveitarfélag verður til á sunnanverðum Vestfjörðum þegar Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinast. Þá fækkar sveitarfélögum á Vestfjörðum úr níu í átta. Flest hafa sveitarfélögin þar vestra líklega verið 37 þegar byggðin var dreifð um allan kjálkann en þeim fór fækkandi upp úr 1960. Þéttbýli stækkuðu, fólki fækkaði og byggð varð strjálbýlli. Það má svo sannarlega segja að það hefur verið byr í seglum samfélaga á Vestfjörðum undanfarinn áratug. Ef horft er til síðustu þriggja áratuga má segja að þar ríki meiri bjartsýni og þróttur en skynja mátti í upphafi þessarar aldar. Uppbygging nýrra atvinnugreina líkt og fiskeldis og ferðaþjónustu hefur komið inn með nýjum krafti og afleidd störf og íbúatalan vex á ný. Það hefur sannarlega átt við á sunnanverðum kjálkanum. Við sameiningu sveitarfélaga fækkar þó ekki kílómetrum á milli staða, sama hvað við leggjum sterkan ljósleiðara. Á síðustu árum hefur verið lyft grettistaki í samgöngumálum á Vestfjörðum og þarf að líta marga áratugi aftur til að finna sambærilegan framkvæmdakraft. Svo að markmiðum um meiri samvinnu sveitarfélaga verði náð þurfa samgöngur að vera greiðar og öruggar og víða er úrbóta þörf ef litið er til byggðaþróunar og daglegrar vinnusóknar. Við gerum kröfur um að samgöngur á svæðinu séu skilvirkar, öruggar og heilsárs. Um þetta getum við verið sammála. Fleiri jarðgöng þurfi að koma til, jarðgöng undir Mikladal og Hálfdán eru forsenda að bættu samfélagi og að sameiningar gangi vel fyrir sig.
Virðulegi forseti. Ég óska íbúum á sunnanverðum Vestfjörðum til hamingju með nýtt sveitarfélag. Það var jú á þessum stað sem Hrafna-Flóki settist að og gaf landinu nafnið Ísland. Einhver sagði að þar drypi smjör af hverju strái og við tökum undir það. Já, það er vor fyrir vestan.