154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar til að gera að umtalsefni hér í dag ólöglega netsölu áfengis sem hefur fengið að viðgangast á Íslandi árum saman vegna athafnaleysis þeirra sem bera ábyrgð á því að halda lög og reglu í landinu. Þetta er alvarlegt mál og það snýst um það hvort ÁTVR hafi einkasölurétt á smásölu áfengis eða ekki. Svo er þetta auðvitað risastórt lýðheilsumál og tengist þar af leiðandi líka áfengisvarnarstefnu okkar, sérstaklega gagnvart börnum og ungmennum. Mér finnst ástæða til að ræða þetta hér í dag. Í fréttum í morgun var sagt frá því að forstjóri ÁTVR hefði gert þetta að umtalsefni í ársskýrslu ÁTVR fyrir síðasta ár. Ég hef líka í höndunum erindi sem mér hefur borist sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar frá fulltrúum forvarnasamtaka hér á landi sem gera alvarlegar athugasemdir við það að í landinu starfi nú tugir netverslana með áfengi í trássi við gildandi lög, því að lögin eru alveg skýr.

Lögin eru alveg skýr og þess vegna er kannski kominn tími til að hið háa Alþingi sinni eftirlitshlutverki sínu gagnvart framkvæmdarvaldinu hvað þetta varðar og komist til botns í því hvort aðgerðaleysi framkvæmdarvaldsins gagnvart þessari framgöngu muni halda áfram eða ekki. Og hvort það sé vilji meiri hluta Alþingis að svo sé.