Störf þingsins.
Forseti. Geðheilbrigði fanga er málefni sem ætti að skipta alla máli en í raun er það málefni sem fær oftast litla sem enga athygli. Það ætti að vera mjög mikilvægt fyrir okkur að þeir einstaklingar sem afplána dóm í fangelsum landsins séu í rauninni að fá betrunarvistun. En hvernig er betrun mæld á Íslandi? Jú, við höfum einungis einn mælikvarða. Það er endurkomutíðni.
Forseti. Að mæla einungis betrun út frá endurkomutíðni segir okkur ótrúlega lítið og sýnir í raun mikið metnaðarleysi að ég tel, metnaðarleysi í að fylgjast raunverulega með og að athuga hvort betrun sé að eiga sér stað hjá einstaklingum að afplánun lokinni.
Forseti. Fyrir tveimur árum spurði ég dómsmálaráðherra um endurkomutíðni. Þá voru nýjustu tölur frá árinu 2018 og ekki hafði orðið mikil breyting á endurkomutíðni frá árinu 2011. Ég býst við, án þess að ég sé með tölur um það, að tíðnin sé enn í kringum 20% eða eitthvað þar fyrir neðan. Geðheilbrigði fanga er ótrúlega mikilvægur þáttur í því að fá einstaklinga aftur út í samfélagið á betri stað en áður. Það að vera sviptur frelsi sínu er mesta inngrip í líf fólks sem hægt er að gera. Móðir einstaklings sem var í afplánun og tók líf sitt í afplánun gagnrýnir í dag Fangelsismálastofnun harðlega og með réttu. Það að þessi einstaklingur hafi upplifað það að vera sviptur frelsi sínu aftur var mikið áfall og eins og gefur að skilja þarf að tryggja öryggi þessara einstaklinga í fangelsum landsins.
Ég má til með, herra forseti, að nefna einnig þann unga mann sem veikur er á geði á götum erlendis. Hann og fjölskylda hans fá ekki þá aðstoð sem þeim ber vegna þess að maðurinn er ekki veikur á líkama heldur á sál.
Herra forseti. Það að við séum ekki komin lengra en það að veikindi á geði eru ekki metin á sama hátt og veikindi á líkama er alvarlegt mál. Veikindi á geði eru líka veikindi. Þau eru jafn alvarleg og jafn mikilvægt að fá úrlausn við þeim og líkamlegum veikindum. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )