154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Störf þingsins.

[11:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Eftir niðurstöðu Hæstaréttar í lok mars síðastliðins þar sem embættisverk fyrrum ríkislögreglustjóra voru dæmd sem ólögmætur gjafagjörningur hlýtur þingið að þurfa að bregðast við. Í niðurstöðu dómsins kemur skýrt fram að afstaða ráðherra, sem var þvert á mat ráðuneytis á heimildum þáverandi ríkislögreglustjóra, hafi verið til að styrkja trú þeirra stefndu sem nutu ólöglega gjafagjörningsins og að, með leyfi forseta, „formlegar og efnislegar heimildir hefðu verið til staðar til að skuldbinda áfrýjendur til að standa við umræddar kjarabætur.“ Utan frá séð getur þetta virkað þannig að ráðherra hafi í raun tekið til sín ábyrgðina á þessari ákvörðun með því að beita bæði pólitísku og formlegu valdi sínu til þess, lofað því að þetta hafi í rauninni verið markmiðið allan tímann. Það tók ráðuneytið hálft ár að komast að því að ríkislögreglustjóra var ekki heimilt að taka þessa ákvörðun sem var svo gerð að engu tæpum mánuði síðar af ráðherra sem blessaði þennan gjörning í ræðustól þingsins.

En það er ekki bara þáverandi fjármálaráðherra sem er í vanda. Þáverandi dómsmálaráðherra gerði starfslokasamning við ríkislögreglustjóra. Ráðherra segir í viðtali við Heimildina að hún hefði átt að kanna hvort fullyrðingar ríkislögreglustjóra stæðust miðað við þá gagnrýni sem var uppi um ákvörðun hans. Í staðinn fyrir að kanna málið kvittaði hún upp á starfslokasamning sem kostaði á sjötta tug milljóna á þávirði, sami dómsmálaráðherra og gat fullyrt þremur mánuðum áður að stjórnsýsluleg niðurstaða í málinu hefði verið í himnalagi. Ákvarðanir ráðherra í þessu máli virðast í besta falli vera gott dæmi um dómgreindarskort og í versta falli getur það verið yfirhylming og beinlínis spilling. Hver sem sér það ekki þarf að kynna sér hugtakið spilling betur því rökin fyrir því ættu að vera augljós öllum sem skoða málið. Augljósa spurningin er því hvort þingið verði ekki að rannsaka hvort hér hafi ráðherrar brotið gegn skyldum sínum en ég ætla að leyfa mér að giska á að stjórnarmeirihlutinn hafi engan áhuga á því og gerist þannig samsekur í verkleysi sínu gagnvart því augljósa verkefni (Forseti hringir.) að rannsaka þetta mál á heiðarlegan hátt.

Ég kem hér upp í störfum þingsins til að minna á að Alþingi fer með eftirlitsskyldur. (Forseti hringir.) Það er okkar verkefni að fylgja málum sem þessum eftir því að ráðherrar hafa haft mörg ár til að sinna sínum skyldum í þessu máli en klúðrað því ærlega. (Forseti hringir.) Við verðum að kveikja ljósin og lofta út í því reykfyllta bakherbergi sem hefur fengið að ágerast hérna. Við verðum að gera betur.