Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða hér um forsjárhyggju sem virðist þurfa að ráða ríkjum og hefur að gera með það hvaða nöfn við megum bera. Mig langar sérstaklega að taka fyrir úrskurð mannanafnanefndar sem hún birti fyrir tveimur dögum síðan þar sem ákveðið var að nafnið Hroði mætti ekki vera nafn. Af hverju mátti það ekki? Jú, það uppfyllir öll skilyrði reglnanna nema huglæga matið sem er að eiginnafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Og hver á að ákveða hvað sé til ama og hvað sé ekki til ama? Jú, mannanafnanefnd ákveður að vegna þess að þetta getur þýtt hluti eins og uppgangur og slím í lungum, rusl, úrgangur og óþverri hljóti þetta að vera slæmt nafn. Á sama tíma samþykkti mannanafnanefnd hins vegar nafnið Klaki. Þegar skoðuð er orðabók Árnastofnunar og flett er upp orðinu Hroði þá kemur fram að ein af skilgreiningunum á því er krapakenndur ís á sjó eða vatni. Og hver er munurinn á því og klaka? Fyrir ykkur sem viljið vita hvernig þetta er notað í setningu þá er komið með dæmið: Hér varð hroði að vestan. Já, þannig er nú það að það er allt í einu búið að ákveða af einhverjum örfáum einstaklingum hvað sé til ama og hvað sé ekki til ama. Þá langar mig bara að bjóða mannanafnanefnd að skoða þau borð sem eru hér víðs vegar um þingið með gömlum víkinganöfnum á eins og Atli rammi, Auðunn skökull, (Forseti hringir.) Leiðólfur ofurkappi og Þórður gellir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)