154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:11]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu hér í dag og ræða fjarskiptamál á þinginu. Það er mikið baráttumál að tryggja að íslensk heimili og vinnustaðir búi öll við gott símasamband. Það er ekki aðeins spurning um betri lífsgæði heldur er það, eins og hv. þingmaður kom inn á, bæði öryggismál og stundum lífsspursmál.

Staðan yfir höfuð í fjarskiptum á Íslandi er mjög góð en stjórnvöld stefna ávallt að því að hún verði enn betri. Ísland er leiðandi land í útbreiðslu á ljósleiðurum. Ísland er með einstaka stöðu í aðgengi að ljósleiðurum í dreifbýli og útbreiðsla á 4G og 5G er á pari við það sem gerist best í heiminum. Þetta hefur gerst bæði í krafti mikillar samkeppni og rétt stilltrar aðkomu stjórnvalda hverju sinni. Það sem hefur jafnframt verið að gerast er að kröfurnar eru að aukast. Á stöðum þar sem farsamband þótti ásættanlegt fyrir nokkrum árum er gerð krafa um gagnaflutninga núna og það kallar á úrbætur, t.d. auknar kröfur varðandi alþjónustu. En í dag, eftir skoðun Fjarskiptastofu — af því að þrátt fyrir þessa góðu stöðu þá búa ekki allir við hana, eins og þingmaðurinn lýsti, og þá getum við aldrei talað um að hún sé ásættanleg þrátt fyrir að við höfum náð mjög miklum árangri.

Við höfum frá því í vetur verið að skoða hvað sé hægt að gera fyrir slíka staði. Niðurstaðan var sú að Fjarskiptastofa hyggst fela Neyðarlínunni að gera úrbætur á þeim heimilum. Við skoðuðum hvaða heimili þetta eru. Samkvæmt frumathugun eru það 100 lögheimili og vinnustaðir sem eiga ekki kost á farneti yfir höfuð eða þá að fyrirliggjandi farnet uppfyllir ekki lágmarksskilyrði um alþjónustu. Við, í samstarfi við Fjarskiptastofu, hyggjumst ráðast í átak til að bæta fjarskiptasamband á þessum 100 stöðum á landinu. Við munum setja 50 milljónir í verkefnið í ár af þeim heimildum sem við höfum. Framkvæmdahraðinn fer eftir þeim fjármunum sem til eru en vonir standa til að það verði þá búið að bæta fjarskiptasambandið á öllum þessum stöðum innan mjög fárra ára.

Markmið stjórnvalda er einfaldlega að allir landsmenn eigi kost á nothæfu netsambandi, sem er ein grundvallarforsenda búsetugæða, menntunar og atvinnuþátttöku í nútímasamfélagi. Með þessu átaksverkefni standa vonir til þess að flýta þessum úrbótum svo að allir landsmenn geti búið við samskiptaöryggi sama hvar þeir búa. Endurnýjun fjarskiptafyrirtækja á fjarskiptanetum síðustu ár hefur haft það í för með sér að grípa þarf til sérstakra aðgerða ef tryggja á áfram lágmarksfjarskiptaþjónustu á einstaka lögheimilum og vinnustöðum með heilsársbúsetu eða -starfsemi. Dæmi um það er boðuð uppbygging og notkun ljósleiðara í stað koparkerfisins og 4G og 5G í stað GSM og 3G. Á þessum stöðum verður ráðist í átaksverkefni undir forystu Neyðarlínunnar til að bæta gæði fjarskiptasambands á slíkum stöðum eins og fyrr segir.

Frá því í vetur hefur ráðuneytið skoðað hvað sé hægt að gera fyrir þessa staði og niðurstaðan var að gera þessar úrbætur á netsambandi á öllum þessum stöðum sem fela þá í sér uppsetningu á nýjum farnetssendum eða styrkingu á fyrirliggjandi farneti.

Hv. þingmaður víkur einnig að stöðu vegakerfisins þar sem öryggissjónarmið varðandi aðgengi að samfelldum farnetum vegur þungt. Þar höfum við séð mikinn árangur. Við höfum samþykkt ný fjarskiptalög sem heimila samstarf fjarskiptafyrirtækja undir ákveðnum kringumstæðum. Bara á milli ársins 2022 og 2023 fækkaði sambandslausum kílómetrum á stofnvegum um 30% og er markmiðið að útrýma alveg sambandslausum köflum á stofnvegum landsins, en sumarið 2023 voru þó enn sambandslausir kílómetrar 124.

Ekki eru áform um sambærilega uppbyggingu á tengivegum eða héraðsvegum en slíkri uppbyggingu fylgir mikill kostnaður. Sú uppbygging væri mjög jákvæð fyrir mörg svæði en það er samkeppni um fjármagnið í fjarskiptum og í forgangi að tryggja fjölfarna vegi.

Það er einnig komið inn á ferðamannastaði. Þetta liggur ekki fyrir. Við höfum samt verið að kortleggja það, Fjarskiptastofa hefur kortlagt útbreiðslu farsíma- og farnetskerfa hér á landi. En, virðulegi forseti, tækninni fleygir samt fram og tæknin mun tryggja áreiðanlegt fjarskiptasamband á öllum þessum leiðum, bæði frá vegum sem eru ekki jafn fjölfarnir og ferðamannastöðum með gervihnattatækninni sem er í örri þróun. Það er útlit fyrir að það verði viðbót við okkar háhraða- og farnetskerfi innan bara örfárra missera sem mun þá geta tryggt fjarskiptasamband á öllum þeim stöðum sem vantar upp á.