154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:17]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu. Það þarf ekki mikið hugmyndaflug til að átta sig á því hvað síminn hafði gríðarlega mikil áhrif þegar hann kom fram fyrir rúmlega 100 árum. Áður höfðu fjölskyldumeðlimir sem bjuggu fjarri hver öðrum þurft að reiða sig á stopular póstsendingar eða bara fréttir förufólks. Lengst af voru símtöl rándýr og ekki notuð nema til að bera á milli brýnustu skilaboð og tíðindi. Það er ekki lengra síðan en svo að ég man eftir því að það var ekkert verið að spandera langlínusímtali frá Akureyri til ömmu í Reykjavík nema bara svona spari, á aðfangadag eða nýársdag eða þegar enn eitt barnið fæddist í heiminn og þá voru símtölin frekar stutt og hnitmiðuð. Þetta er auðvitað gjörbreytt og við göngum með símtækin í höndunum og samskiptin eru orðin miklu tíðari, kannski fulltíð á köflum og umræðuefnið frekar hversdagslegt. En símtækið er mikilvægt öryggistæki og það er óneitanlega þægilegra að hafa það við höndina þegar það er farið milli byggða í vondum veðrum og erfiðum aðstæðum víða um land. En gallinn á gjöf Njarðar er hins vegar sá að það er alls ekkert símasamband á löngum köflum og bagalegast er að yfirleitt rofnar það þar sem síst skyldi, fjærst nálægri byggð þar sem þó væri von á aðstoð og hjálp. Það má eiginlega segja sömu sögu af sendingum Ríkisútvarpsins sem þó gegnir mikilvægu almannavarnahlutverki. Í fyrravetur var ég t.d. á ferð um Möðrudalsöræfin og reyndi að stilla á rásir RÚV en eina stöðin sem ég náði var kristilega stöðin Lindin og er ekki eitthvað bogið við það, herra forseti?