154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:19]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda þessa mikilvægu umræðu. Hún gleður mig því að mitt fyrsta framlagða mál á Alþingi haustið 2021 var nákvæmlega þetta eftir að hafa upplifað það hversu götótt kerfið er. Krafan um að geta verið að vinna á ferð eða verið á fjarfundum, sem hefur verið vaxandi krafa, sérstaklega eftir Covid, er alls ekkert í boði á ferðum okkar um landið.

Höldum því til haga að sumt á að einkavæða og annað ekki. Það eru ákveðnir innviðir, ákveðnar stoðir, ákveðnir grunninnviðir sem eru kannski ekkert einkavæðingarvænir af því það eru göt sem gefa ekki nógu vel af sér. Þá standa þau óbætt árum og áratugum saman. Þegar Síminn var seldur með skýru fyrirheiti kaupenda um að grunnnetið yrði ekki selt brott þá var það ekki nógu vel fest í lög. Það var bara gert daginn eftir að samningar voru undirritaðir, að selja nákvæmlega það. Ég fagna því að meiri hlutinn hafi nú tekið þetta minnihlutamál þingmanns Flokks fólksins upp á arma sína. En með fullri virðingu fyrir 50 millj. kr. framlagi núna og kannski á næsta ári þá er það allt of lítil upphæð til þess að hægt sé að bæta þann skaða á grundvallarlífsgæðum og bara réttindum til að geta talað í síma landið um kring á hringveginum og verið þar í öruggu sambandi, sérstaklega ef eitthvað ber út af. Af því að svona illa tókst til með að tryggja að það yrði grunnnet í eigu samfélagsins sem myndi tryggja þetta þá held ég að þurfi að gefa í og leggja meiri fjármuni í að stoppa í götin og það án frekari tafa. Ár eða nokkur ár eru of langur tími. Ég veit að það er alveg vilji til þess hjá símafyrirtækjunum að vinna saman að þessu. (Forseti hringir.) En það er ekki allt hagnaðardrifið eða gróðavænt að stoppa í þessi göt þannig að það þarf meiri upphæðir heldur en eru hér í boði akkúrat í dag. En ég þakka fyrir umræðuna og góðan vilja sem þarf að efla.