Fjarskipti í dreifbýli.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og fyrir að breikka hana dálítið frá því sem oft vill verða. Við höfum heyrt síðustu misserin í þessum sal ítrekað talað um götin á þjóðvegakerfinu. Það er eins og þingmenn átti sig ekki á stopulu farsímasambandi úti um landið nema þegar þeir keyra í gegnum dreifðu byggðirnar á þjóðvegi 1. Það er vissulega stór þáttur af öryggisvandanum sem við stöndum frammi fyrir en hitt er ekki síður mikilvægt, byggðavandinn sem felst í því að fólk geti ekki stólað á það sem er orðið að grunninnviði nútímasamfélags. Þær tölur sem hér hafa verið nefndar eru eitthvað sem við þurfum að skoða, myndi ég halda, innan umhverfis- og samgöngunefndar á næstunni vegna þess að við tókum auðvitað eftir svari við fyrirspurn hv. þm. Lilju Rafneyjar Sigurgeirsdóttur þar sem kom fram að rúmlega 100 heimili væru með lítið eða ekkert farsímasamband og hæstv. ráðherra fór yfir hvernig ætti að taka á þeim þætti með sértækri íhlutun Neyðarlínunnar. Eftir stendur tíu sinnum stærri hópur heimila sem er með slitrótt eða stopult samband, 1% heimila minnir mig að hv. þingmaður hafi sagt. Á síðasta ári voru flestar tíðniheimildir boðnar út til 20 ára og við það tækifæri var bætt inn skýrum ákvæðum um, hvað köllum við það, útbreiðslu og hraðakröfur til farsímafyrirtækjanna. Undir lok árs 2026 er stefnt að því að hlutfall heimila og vinnustaða sem búa við háhraðafarnetsþjónustu fari upp í 95% og ári síðar nái það 99%. Hvorug þessara talna hins vegar nær utan um þetta 1% (Forseti hringir.) sem í máli málshefjanda var bent á að væri án tryggs háhraðasambands. (Forseti hringir.) Við þurfum að skoða betur hvort aðilar á markaði þurfi ekki að hafa skýrari þjónustu til að fylla markaðinn betur.