Fjarskipti í dreifbýli.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga máli og hæstv. ráðherra fyrir að koma hér og taka þátt í umræðunni. Það er mjög jákvætt að heyra á orðum ráðherra að það standi mikið til. Við ætlum að bæta og við ætlum að laga, en staðan er auðvitað sú að það er óboðlegt árið 2024 að um 100 heimili séu án öruggra tengsla. Mig langar að nota mínar mínútur hér til að ræða um það að við búum orðið í samfélagi þar sem nánast allt sem við gerum byggir á því að við séum í góðum tengslum; það varðar heilbrigðisþjónustu, það varðar menntamál, það varðar allt sem við gerum í okkar daglega lífi. Þess vegna er það svo alvarleg staða að fjölskyldur og fyrirtæki búi við þá stöðu að hafa ýmist ekkert samband eða stopult samband, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á, þegar við beinum því líka sem stjórnvöld í þann farveg að við sækjum okkur heilbrigðisþjónustu og alla almenna þjónustu í gegnum slíkar tengingar. Þess vegna kem ég hér upp og legg á það áherslu að við verðum að standa okkur betur. Við verðum að flýta þeim áætlunum sem til staðar eru um að laga þetta kerfi. Eitt er það að vera að keyra um landsbyggðina í stopulu sambandi og sú áhætta sem því fylgir ef eitthvað bjátar á, annað er svo okkar daglega líf inni á okkar heimilum eða vinnustöðum og að við getum ekki sinnt okkar daglegu þörfum án öruggs sambands.