154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:27]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Það er mikið og stórt öryggismál að allar byggðir landsins hafi aðgang að öflugum fjarskiptainnviðum og þá sérstaklega farsímasambandi og öflugri nettengingu. Það mun hjálpa til við að viðhalda búsetu í dreifðum byggðum og auka möguleika fólks til að sinna sínu starfi án tillits til staðsetningar. Miðað við gildandi fjarskiptaáætlun er uppbygging farsíma- og gagnaflutningskerfisins í höndum einkaaðila sem þó lúta ströngu og krefjandi regluverki og mikilvægt er að sú uppbygging haldi áfram. Fjarskiptafyrirtækjunum er gert að ná að dekka alla stofnvegi landsins með að lágmarki 250 megabæta tengingu fyrir árið 2027 og mun fimmta kynslóðin eða 5G-sambandið hjálpa til við að leysa það. Ekki er lengra síðan en í fyrra að upp kom bilun í fjarskiptasambandi Mílu á Fáskrúðsfirði sem hafði áhrif á fjarskipti á sunnanverðum Austfjörðum; á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og svæðinu þar í kring. Í nóvember 2022 fór ljósleiðari í sundur við vegagerð og allir íbúar Skagastrandar voru net- og farsímalausir. Þá gekk erfiðlega að laga ástandið vegna erfiðra aðstæðna enda er allra veðra von á Íslandi. Það er þess vegna ljóst að innviðir landsbyggðarinnar þegar kemur að fjarskiptum eru brothættir. Sveitarfélög og aðrir hagaðilar munu þurfa að eiga samtöl bæði við opinbera aðila og einkaaðila til að liðka fyrir framkvæmdum á slíkum svæðum sem ekki falla undir þær kvaðir sem fjarskiptafyrirtækjunum eru settar. Sem dæmi má nefna að samkvæmt greiningum sem fyrirtækið Gagna ehf. gerði þá vantar u.þ.b. 24 nýja sendistaði á Vestfjörðum til að ná markmiðum um slitlausa þjónustu á stofnvegum. Sú vinna er í gangi og verður vonandi lokið innan tíðar. Mikilvægi fjarskiptasambands (Forseti hringir.) á landsbyggðinni er ótvírætt og vonandi ná áætlanir fjarskiptaáætlunar fram að ganga.