154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:31]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu sem er reglulega tekin hér á þingi og við ræðum víða; í samgönguáætlun, við ræðum hana máli um landsskipulag sem við vorum að samþykkja í gær. Hún er víða tekin og fjarskipti eru óþrjótandi uppspretta umræðu. Ég ætla kannski að ræða eina spurningu sem snýr að uppbyggingu á farsímasambandi á stofnvegum. Þegar farsímaheimildirnar eða tíðniheimildirnar voru seldar í mars í fyrra var farið af stað í kringum þann samning við að byggja upp farsímasambandið á stofnvegunum. Það er samningur upp á 700 milljónir og fjarskiptafyrirtækin fjögur, þ.e. Öryggisfjarskipti og Neyðarlínan, Nova, Sýn og Síminn, taka að sér og skipta á milli sín að koma þessu á á þeim stöðum þar sem er markaðsbrestur. Hæstv. ráðherra kom inn á að þetta væru um 134 kílómetrar á stofnvegunum þar sem ætti eftir að koma á góðu sambandi. Þetta er ekkert nýtt fyrir þann sem hér stendur sem hefur keyrt um landsins vegi lengi en það er gott að þingmenn séu að átta sig á því að það er víða slæmt sambandið þegar farið er um landið, eða svona punktar. Þetta hefur hins vegar tekið stakkaskiptum á ekki löngum tíma og þetta samkomulag í mars í fyrra var gríðarlega stórt og mikilvægt. Ef það samkomulag stenst ætti að takast að klára, eins og hefur komið fram, í lok árs 2026 um 60 senda á stofnvegum landsins og þar á meðal 24 á Vestfjörðum, eins og kom fram hér að framan. Þetta er því gríðarlega stórt og mikilvægt mál og eitt það stærsta. Það er mikilvægt, eins og hæstv. ráðherra bendir á, að það er verið að tengja þessi 100 heimili sem eru ekki í sambandi með ákveðinni áætlun, þannig að það er víða unnið.

Ég vildi síðan rétt koma inn á það sem snýr að gervihnattasímum, Starlink. Þar eru gríðarleg tækifæri og íslenskir neyðaraðilar eru farnir að nota Starlink á Íslandi (Forseti hringir.) og þannig er hægt að ná sambandi um allt land með góðum hætti. Það eru því víða tækifærin (Forseti hringir.) til að bæta fjarskipti.