Fjarskipti í dreifbýli.
Herra forseti. Ég vil eins og aðrir þakka málshefjanda fyrir að fá okkur til þess að fjalla um fjarskipti í dreifbýli og vekja athygli á þeim annmörkum sem eru þar á. Ef stjórnvöld vilja í raun halda landinu í byggð er nauðsynlegt að koma því þannig fyrir að netsamband sé sem víðast og farsímasamband einnig. Fólk treystir á farsímana sína og nettengingar eru nauðsynlegar fyrir fyrirtækjarekstur, búrekstur og heimilisrekstur almennt. Almannahagsmunir í fjarskiptum eru bæði fólgnir í virkri þjónustu og möguleikum til að ná sambandi við neyðarþjónustu 112. Þótt fjarskiptin séu í þokkalegu lagi þar sem ég bý á Suðurnesjum eru víða annmarkar annars staðar í Suðurkjördæmi. Það sama má segja um þriggja fasa rafmagn sem einnig varðar búsetuskilyrði. Í lögunum sem samþykkt voru í júní 2022 er ákvæði sem ætlað er að stuðla að öryggi 5G farnetsþjónusta á Íslandi og gagnsæi um stefnu stjórnvalda á þessu sviði. Við þróun, uppbyggingu og rekstur fjarskiptaneta á samkvæmt lögunum að bregðast við áhættuþáttum sem varða almannahagsmuni og öryggi. Spurningin er hins vegar um framkvæmdina.
Þjóðaröryggisráð fjallar um fjarskipti í skýrslu sinni um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum frá því í desember 2022. Þar er tekið fram að mikilvægi fjarskipta sé margþætt enda fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta ein af undirstöðum mikilvægrar samfélagslegrar og efnahagslegrar starfsemi, þar á meðal mikilvægra innviða. Hamfaraveður og jarðhræringar skapa áhættu fyrir fjarskiptakerfið. Í óveðrinu sem reið yfir landið í desember 2019 kom bersýnilega í ljós að það varaafl sem fjarskiptafyrirtækin höfðu til staðar var ekki nægilegt til að mæta langtímarafmagnsleysi. Almenningur lítur á farsímann sem öryggistæki og því er mikilvægt að farsímasamband og rafmagn sé aðgengilegt og öruggt sem víðast.