154. löggjafarþing — 114. fundur,  17. maí 2024.

Fjarskipti í dreifbýli.

[11:36]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu, öryggismál í dreifbýli, stórt öryggismál. Þetta er stórt öryggismál fyrir alla sem búa í dreifbýli og einnig stórt öryggismál vegna vegasamgangna og samgangna í landinu. Ég get tekið dæmi t.d. að vestan, frá Vestfjörðum, Arnarfirði, þar sem ég á lögheimili. Þá þurfti ég alltaf að fara upp í dráttarvél til að hringja og núna eftir að dráttarvélin hvarf þá þarf ég að fara niður á bakka til að ná símasambandi. Það er ómögulegt að ná símasambandi í dalnum. Það er með marga svona staði víða um land í dreifbýli þar sem ekki er hægt að hringja nema fara upp á fjall eða niður á bakka eða ná geisla til að ná sambandi við umheiminn. Vissulega getur verið þægilegt að vera án símans öðru hverju en það breytir því ekki að þetta er gríðarlega mikilvægt tæki í okkar daglega lífi. Við þekkjum það öll.

Það að margir vegarkaflar á landinu séu án farsímasambands er gríðarlegur öryggisbrestur. Það má segja að t.d. í Djúpinu eru stórir vegarkaflar sem eru ekki með farsímasambandi, sama á norðurströnd Breiðafjarðar, Barðaströndinni, og svona er þetta víða um land. Það verður að fara að gera áætlun um það að allir stofnvegir og líka aðrir vegir sem eru mikið notaðir verði komnir í farsímasamband. Þetta á ekki einungis við um stofnvegina heldur bara flesta vegi. Það þarf að vera nettenging, bara gefa út kort, eða það er sennilega búið að gefa út kort þar sem kemur fram, og helst skilti á vegum þar sem er ekki farsímasamband. Á ferðamannasvæðum landsins og reiðleiðum, gönguleiðum og veiðisvæðum þar sem ferðamenn koma saman þarf þetta líka að vera. Það er algerlega óásættanlegt að þar sem fólk er á ferð í landinu í dag sé ekki farsímasamband. Þetta er orðið það mikilvægur hluti af okkar daglega lífi (Forseti hringir.) og sem öryggistæki hlýtur þetta að vera forgangsmál hjá ríkisstjórninni og ég skora á ráðherra að taka þessi mál til alvarlegrar skoðunar.