Fjarskipti í dreifbýli.
Frú forseti. Ég held að það segi sína sögu að þegar Alþingi samþykkti fyrr í vetur tillögu um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi var einn af þremur köflum í þeirri stefnu kafli um fjarskipti, upplýsingatækni og netöryggi. Nútímasamfélag byggir á traustum fjarskiptum og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt skref sem við erum að taka í umræðunni í dag, að breikka aðeins umræðuna um það hvernig við nálgumst farsímanetsambandið. Þó að vissulega hafi tækniþróun náð að styrkja kerfið á síðustu árum þá hefur hún líka gert það að sumu leyti þyngra í vöfum. Þegar við færðum okkur úr 4G upp í 5G jukust gagnaflutningsmöguleikar stórlega og fyrir vikið hefur umferð á farsímanetum margfaldast á síðustu árum en kraftur hvers sendis dróst saman. Þeir drífa ekki jafn langt og gömlu sendarnir þannig að það að viðhalda kerfi sem dekkar landið almennilega er orðið flóknara. Þetta hefði þurft kannski að ávarpa betur í tillögunni um þekkingarsamfélagið þar sem er t.d. talað um að Ísland eigi að verða gígabitaland, sem snýst um afköst, en afköstin eru í grunninn ekki vandamálið í dag. Stofnnetin eru þannig séð að drukkna í afköstum. Það sem þarf að tryggja í dag er áreiðanleiki og gæði sambandsins. Þar kreppir skórinn svo sannarlega í dreifðum byggðum sem er erfitt að ljósleiðaravæða og væri kannski einfaldara að stökkva yfir það skref, treysta bara á farnetið (Forseti hringir.) og byggja það upp á dálítið öflugan hátt þannig að fólk í þeim sveitum geti tekið þátt í þekkingarsamfélaginu Íslandi eins og við hin.